lax- og silungsveiði.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, og fjallar um hnúðlax.
Frumvarpið felur í sér að veiðifélögum og veiðiréttarhöfum verði heimilað að veiða hnúðlax sem kann að ganga í íslenskar ár með svokölluðum ádráttarnetum næstu þrjú ár, þ.e. árin 2023, 2024 og 2025. Síðastliðin ár hafa mælingar gefið til kynna aukna gengd hnúðlaxa í íslenskum ám, þá sérstaklega árið 2021, og má því ætla að ganga hnúðlaxa árið 2023 verði meiri en verið hefur.
Við fjölluðum um þetta mál á fundi nefndarinnar og fengum eina umsögn sem getið er í nefndarálitinu sem liggur frammi. Við leggjum til að málið verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Teitur Björn Einarsson og Þórarinn Ingi Pétursson.