Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

lax- og silungsveiði.

957. mál
[17:31]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegur forseti. Það verður athyglisvert að sjá árangurinn af þessari tilraun sem er hér verið að gera við að stoppa innrás frá Rússlandi á þessum innflytjendum í árnar hjá okkur. Hnúðlaxinn kemur einmitt þaðan og hann hefur verið að þessu frá sirka 1960 þegar kalda stríðið var í algleymingi. Það verður athyglisvert að sjá hvort þetta leyfi til að nota net muni nýtast.