Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga sem fela í sér að verkefni stofnunarinnar verði færð til sýslumanns. Líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er markmið tilfærslunnar að skapa trausta umgjörð um innheimtu meðlaga og annarra framfærsluframlaga samkvæmt ákvæðum barnalaga, nr. 76/2003, eða á grundvelli þjóðréttarlega samninga um innheimtu krafna, einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, stuðla að jákvæðri þróun starfseminnar og bæta þjónustu við meðlagsgreiðendur. Þá er í greinargerðinni rakin forsaga málsins en umræða um flutning verkefna stofnunarinnar til ríkisins er alls ekki ný af nálinni. Í skýrslum nokkurra starfs- og verkefnahópa allt frá árinu 2002 hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að slík tilfærsla sé eðlileg. Þá má nefna skýrslu Ríkisendurskoðunar um Innheimtustofnun sveitarfélaga sem kynnt var fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í október síðastliðnum þar sem m.a. var lagt til að innheimtumönnum ríkissjóðs yrði falin ábyrgð á innheimtu meðlaga og að yfirfærslan yrði hafin án tafar.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar árétta sérstaklega:
Nefndin fjallaði um hvort nauðsynlegt væri að stofnunin, eða í reynd skel hennar, starfaði áfram í fjögur ár eftir gildistöku laganna og flutning verkefna stofnunarinnar til ríkisins líkt og frumvarpið gerir ráð fyrir. Óskað var eftir minnisblaði innviðaráðuneytisins til frekari skýringar á þeirri tilhögun og barst það nefndinni 25. apríl. Minnisblaðið er aðgengilegt á Alþingisvefnum undir málinu. Þar er áréttað að Innheimtustofnun sveitarfélaga sé í eigu sveitarfélaga og beri öll sveitarfélög landsins sameiginlega ábyrgð á eignum og skuldbindingum stofnunarinnar. Í ljósi þess að ekki sé gert ráð fyrir að aðrar eignir eða skuldbindingar en þær sem tilteknar eru í frumvarpinu færist yfir til ríkisins sé nauðsynlegt að ákveða fyrirsvar vegna þeirra réttinda og skuldbindinga sem ekki færast til ríkisins. Með því að leggja til að stofnunin verði ekki lögð niður heldur starfrækt áfram undir stjórn verkefnisstjórnar sé tryggt að slíkt fyrirsvar sé fyrir hendi. Í minnisblaðinu kemur fram að einkum hafi verið horft til þeirrar óvissu sem kunni að skapast um fyrirsvar vegna mögulegra réttinda og skuldbindinga stofnunarinnar ef hún yrði lögð niður áður en mál sem varða stofnunina hafa verið leidd til lykta. Þar séu sérstaklega höfð í huga dómsmál á hendur stofnuninni vegna starfsmannamála en óvíst sé hvenær meðferð þeirra ljúki. Einnig sé horft til þess að almennur fyrningartími krafna sé fjögur ár, sbr. 3. gr. laga um fyrningu kröfuréttinda, nr. 150/2007, og því nauðsynlegt að sveitarfélögin hafi skýrt fyrirsvar um málefni stofnunarinnar á því tímabili eftir að verkefni hennar hafi verið færð til ríkisins. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og þær skýringar sem fram koma í minnisblaði ráðuneytisins og telur fjögur ár hæfilegan tíma.
Þá fjallaði nefndin um fjárhagslega skiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna flutnings verkefnanna frá Innheimtustofnun til sýslumanns. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga voru gerðar athugasemdir við þá kostnaðarskiptingu sem lögð er til í frumvarpinu, þ.e. að framlög ríkisins í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga lækki um 0,075% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs og tryggingagjöldum eða sem nemur 750 millj. kr. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að lækkunin nemi áætluðum kostnaðarauka ríkisins vegna verkefnaflutningsins til að tryggja að ekki verði verulegar breytingar á tekjum eða útgjöldum ríkis eða sveitarfélaga vegna verkefnaflutningsins en sambandið er ósammála kostnaðarmatinu og telur fjárhæðina vera of háa. Benti sambandið m.a. á að ríkið hefði mikla möguleika á að ná fram samlegðaráhrifum við önnur verkefni þar sem útgreiðsla og innheimta meðlaga yrði á sömu hendi en ekki væri tekið nægilegt tillit til þessara hagræðingarmöguleika við útreikninginn. Þá verði að líta til þess að hér sé búinn að vera samfelldur hagvöxtur um áraraðir og greiðslugeta skuldara, m.a. meðlagsskuldara, því almennt góð og þar með líkur til að innheimta gangi vel og haldist stöðug. Ríkið hafi einnig tækifæri til að hafa áhrif á innheimtu meðlaga með ákvörðunum sem teknar eru í tengslum við almannatryggingakerfið, t.d. með breytingum á barnabótum o.fl. Með vísan til skýrslu Ríkisendurskoðunar um Innheimtustofnun sveitarfélaga megi einnig leiða líkur að því að rekstur stofnunarinnar hafi engan veginn verið fullnægjandi og hafi það leitt til þess að framlög til jöfnunarsjóðs hafi verið hærri en ef reksturinn hefði verið í réttu horfi og þurfi að taka tillit til þess við ákvörðun um lækkun framlaga til sjóðsins.
Nefndin óskaði eftir minnisblaði innviðaráðuneytisins með nánari skýringum á fjárhagslegri skiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna flutnings verkefnanna til ríkisins með hliðsjón af athugasemdum Sambands íslenskra sveitarfélaga og barst það nefndinni 3. maí 2023. Það er aðgengilegt á Alþingisvefnum undir málinu. Í minnisblaðinu kemur fram að horft hafi verið til meðaltals á greiðslum sjóðsins á tímabilinu 2012–2021, en að gert sé ráð fyrir því að rekstrarkostnaður verði að einhverju marki lægri en verið hefur hjá sveitarfélögum. Því hafi verið miðað við fjárhæð sem nemur 750 millj. kr. Þá koma einnig fram önnur sjónarmið, m.a. að ekki verði talið rétt að líta til sjónarmiða um tækifæri ríkisins til þess að hafa áhrif á innheimtu meðlaga til framtíðar, enda sé ekki hægt að ganga út frá því að ákvarðanir stjórnvalda muni leiða til hærra innheimtuhlutfalls. Að öðru leyti vísar meiri hlutinn til þeirra sjónarmiða sem fram koma í minnisblaði ráðuneytisins.
Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur eingöngu til breytingar á frumvarpinu sem eru tæknilegs eðlis og þarfnast ekki skýringar.
Að framansögðu virtu leggur meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim lagatæknilegu breytingum sem tilgreindar eru í álitinu.
Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, Bjarni Jónsson, Ingibjörg Isaksen, Orri Páll Jóhannsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir með fyrirvara. Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Ég hef þá rakið hér nefndarálitið eins og það liggur fyrir en mig langar að koma aðeins inn á tilurð og tilefni þessa frumvarps. Í gær fór hv. formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar ágætlega yfir álit meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Innheimtustofnun sveitarfélaga sem við höfðum hjá okkur í þeirri nefnd og hefur verið rakið þar í hennar ræðu. Það er ástæða til þess að það var loksins ráðist í þetta verkefni sem hefur staðið til frá því um aldamótin, má segja, því að það hefur þótt ástæða til þess að færa stofnunina yfir til ríkisins. Ég held að sú tillaga, að flytja hana til innheimtumiðstöðvar á Blönduósi, hjá sýslumanninum þar, sé góð, henni sé vel fyrir komið þar enda hafa þau staðið sig mjög vel í sínu starfi. Það er náttúrlega talað um það í greinargerð með frumvarpinu að um sé að ræða langtímaverkefni við að styrkja starfsstöðvarnar á landsbyggðinni, í samræmi við áherslur í stefnumótandi byggðaáætlun og greiningu og áætlun sýslumanns um dreifingu starfa vegna verkefna Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Ég vil minna að það er starfsstöð stofnunarinnar á Ísafirði þar sem vinna fimm manns, hún er til húsa hjá sýslumanninum og hefur gengið mjög vel eftir að flutt var þangað. Og ég held að það sé mjög mikilvægt að það verði áfram horft til þess að hægt sé að byggja þannig undir þessa starfsemi að það byggist upp traust. Með því að afhenda verkefnið sýslumanninum á Blönduósi held ég að því sé vel fyrir komið því þau þekkja til starfa hvað þetta varðar.