Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

Innheimtustofnun sveitarfélaga.

896. mál
[17:43]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs til að gera grein fyrir fyrirvara sem ég gerði við nefndarálit meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Ég styð þetta mál og það gerum við í Samfylkingunni en mér þótti ekki alveg nógu skýrt hvort tekið yrði tillit til óska Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna yfirfærslunnar er varðar þær upphæðir sem talið er að þurfi til framkvæmdanna og rekstrarins á innheimtunni. Þetta kom skýrt fram í umsögn sambandsins og frá fulltrúum þeirra sem mættu á fund nefndarinnar. Ég gerði þennan fyrirvara til að vekja athygli á þessu og kannski að reyna að beina því til framkvæmdarvaldsins og hæstv. fjármálaráðherra að taka tillit til óska Sambands íslenskra sveitarfélaga um þessa upphæð og hvernig hún verður reiknuð.