skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður getur haft þá skoðun sem hann kýs á því hvernig staðið skuli að því að mæta kostnaði vegna eftirlits. En mér heyrist að ég og hv. þingmaður séum í það minnsta sammála um að mikilvægt sé að sinna þessu eftirliti og það er þó jákvætt. Ég ætla í þessu síðara andsvari að vísa aftur til þess að ein af ábendingum Ríkisendurskoðunar er á þá leið að gjaldskrá Matvælastofnunar vegna útgáfu rekstrarleyfa og eftirlits með starfsemi leyfishafa þurfi að endurspegla raunkostnað. Fram kom að stofnunin niðurgreiddi í raun eftirlitsstörf sín á sviði fiskeldis. Þetta er hreinlega tekið upp úr skýrslunni sjálfri og því sem kemur frá ríkisendurskoðanda.