Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.

1053. mál
[18:27]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef verið að renna yfir þetta álit sem kom í dag, held ég. Mig rak í rogastans þegar lagt var til að þetta yrði lagt niður og vísað til skýrslu ríkisendurskoðanda sem fjallaði nánast ekkert um sjókvíaeldi heldur um eftirlit og framgang laga um þetta. Það væri brotalöm hjá ríkinu en það hefur ekki farið eftir þeim reglum sem það sjálft setti. Þetta var ekki svört skýrsla um sjókvíaeldið sjálft.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í þessa furðulegu uppástungu hér: „Því væri nauðsynlegt að ráðast í vandaða og ítarlega greiningarvinnu svo að unnt verði að leggja til viðeigandi mótvægisaðgerðir. Ríkisstjórnin gæti til að mynda lagt fram fjármuni til að byggja upp aðra starfsemi sem gerði svæðin sjálfbærari.“

Hvað áætlar þingflokkur Pírata langan tíma í það? Höfum við eitthvert andrými meðan sú aðgerð stendur yfir? Eigum við að bíða í tíu ár, fimmtán ár? Sjókvíaeldi sem stundað er á Vestfjörðum skilar 32 milljörðum kr. í útflutningstekjur. Eigum við að segja stopp núna? Hvað eigum við að gera á meðan? Hefur þingflokkur Pírata kynnt sér þá uppbyggingu sem orðið hefur á þessum svæðum, sem eru vissulega brothættar byggðir, og í hvaða átt að sjálfbærni við fyrir vestan höfum farið með fiskeldi? Væri ekki nær að byggja undir þann lagaramma sem þegar er fyrir hendi, og tryggja að við búum þannig um sjókvíaeldi að vel megi við una, herða eftirlit, herða reglur?