Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.

1053. mál
[18:35]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil taka það fram að ég er langt frá því að vera fylgjandi þessu minnihlutaáliti og tel það að einhverju leyti vanhugsað, nema þá að menn hafi verið að slá þessu fram til að fá einhverja umræðu því það er alveg augljóst að það hlýtur að vera hægt að gera fiskeldið þannig úr garði, eins og aðra atvinnustarfsemi, að það gangi vel upp og í sátt við umhverfið. En þetta leiðir hugann að því sem út af ber, sem er greinilega eftirlitið og lagaleg umgjörð. Það sem mér finnst vera umhugsunarvert er að það er bara örstutt síðan þessu var öllu breytt til einföldunar og til að ná betri árangri. Ef ég man rétt þá breyttist þetta á árinu 2016 og þá er farið í þetta far, það átti að vera eitt leyfi, einfalda leyfisveitingarferlið. Uppi sitjum við með þessa skýrslu sem segir að það þurfi að breyta einu og öðru. Það væri áhugavert að fá fram sjónarmið hjá Pírötum hvað þennan þátt varðar, hvort þetta hafi mistekist og hvernig við eigum að ganga frá þessum málum í framhaldinu, þ.e. að eftirlitið og stjórnsýslan fái betri blæ. Það er líka vert að vekja athygli á því að atvinnugreinin sjálf er að kalla eftir því vegna þess að það er auðvitað ekkert gaman að vera bitbein og sitja undir ásökunum og allt það og hafa þá staðreynd á borðum að eftirlitið sé brotakennt og það þurfi að gera betur.