skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það fari ekkert á milli mála við lestur þessarar skýrslu að eftirlitinu og öðru er stórlega ábótavant. Það eru ýmsir hlutir sem tengjast því, m.a. að það er ekki nægt fjármagn sett í eftirlit. Þetta er ekkert eitthvað sem við sjáum bara í fiskeldinu heldur sjáum við það mjög mikið á mörgum sviðum að það er verið að skera niður í eftirliti sem hreinlega hefur þau áhrif að við náum ekki að fylgjast eins vel með og við náum ekki að tryggja þetta. Það virðist vera einhver ótrúleg hræðsla í þessari ríkisstjórn núna við að setja gjöld fyrir eftirlit og rannsóknir sem standa undir kostnaði. Við sjáum þetta bara í sjávarútveginum þar sem Hafrannsóknastofnun þarf að skera niður á hverju ári og er samt ætlað að koma með rannsóknir sem eru vel unnar og byggja á góðum gögnum. Ef við ætlum að rannsaka þessa hluti vel þá þurfum við fjármagn til þess. Ef við ætlum að hafa eftirlit þurfum við fjármagn til þess. Það er bara sjálfsagt í mínum huga að fjármagnið til þess komi frá þeim sem eru að græða á þessu. Ég er ekkert einn um það. Í þessari skýrslu er líka talað um að það þurfi að standa betur að fjármögnun á á þessum hlutum. Og þegar kemur að umhverfinu þá þurfum við að passa okkur, það er ekkert plan B að byggja upp einhvers staðar annars staðar, það er engin önnur eyja sem við getum flutt til þegar við erum búin að eyðileggja þessa.