Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.

1053. mál
[18:40]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel þetta bara ágætisumræða fyrir mig sem eftirlitsmann að fara aðeins að ræða þessa eftirlitsþætti sem hv. þingmaður benti á. Það sem ég er að reyna að koma hér á framfæri og kom kannski ekki nægilega skýrt fram hjá mér er að það skiptir verulega miklu máli að vera ekki að tengja eftirlitið við einhverja gjaldskrá heldur að það sé virkt og gott, ekki háð því að fá einhver bein framlög frá eftirlitsþeganum. Það að Matvælastofnun og Umhverfisstofnun fái ekki nægilegt fjármagn — það á ekki að tengja það við gjaldskrá. Það er ákveðin mantra sem Samtök atvinnulífsins vilja fara með en varðandi ýmsa þætti í þessum málum sem snúa að fiskeldi þá er ég viss um að meira að segja á þeim bænum, hjá Samtökum atvinnulífsins, séu menn farnir að sjá að það skiptir verulega miklu máli að hafa trúverðuga umgjörð um atvinnugreinina. Það er mikilvægur þáttur, tel ég vera. Þessi umgjörð sem við erum að fara í núna er frá árinu 2016 og það ætti að vera áhyggjuefni, að þetta sé ekki betra núna árið 2023, að við stöndum frammi fyrir brotakenndu eftirliti og þessum þáttum. Síðan skiptir miklu máli að ná nærsamfélaginu inn í skipulag og til að fjalla um þessa þætti. Þá næst, tel ég, betra utanumhald í staðinn fyrir að menn séu með eftirlitið í jafnvel mörg hundruð kílómetra fjarlægð. Það hlýtur að vera hægt að gera þetta betur og ná góðu samtali um hvernig við eigum að lenda þessari umgjörð um þessa atvinnugrein í góðri sátt.