Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 111. fundur,  24. maí 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.

1053. mál
[18:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Það er með mikilli ánægju sem ég tek þátt í umræðu um álit er fylgja skýrslu Ríkisendurskoðunar um lagaframkvæmd og regluverk í kringum sjókvíaeldi hér á landi. Ég hygg að þessi skýrsla hafi markað nokkur tímamót og er hæstv. matvælaráðherra þakklát fyrir að hafa beðið um hana, beðið Ríkisendurskoðun um að taka út lagaframkvæmdina, regluverkið og eftirlitið vegna þessarar atvinnugreinar. Þessi skýrsla og niðurstöður hennar og umfjöllunin um hana og úrvinnslan sem tekur vonandi við gefur bæði löggjafanum og framkvæmdarvaldinu tækifæri til að meta stöðuna eins og hún er, læra af því sem vel hefur verið gert, læra af mistökum og fara að ábendingum Ríkisendurskoðunar sem fram koma í skýrslunni og eru einar 23, ef ég man rétt. Það var því gott að ráðherrann bað um þessa skýrslu og að hún barst Alþingi. Síðan vitum við auðvitað að einnig hefur verið unnin skýrsla ráðgjafarfyrirtækis, Boston Consulting Group heitir það, sem er til umfjöllunar í matvælaráðuneytinu að ég best veit, og þar er lagt upp með sviðsmyndir, eins og það heitir nú til dags, um framtíð sjókvíaeldis og eldis bara yfir höfuð á Íslandi. Ég hygg að það að hafa gert hlutina í þessari röð og að fá skýrslu Ríkisendurskoðunar og síðan skýrslu Boston Consulting Group, þó að maður geti auðvitað haft alls konar skoðanir á því sem kemur fram í þeirri skýrslu, eigi að gefa okkur betri grundvöll til að huga að framhaldinu.

Eins og hér hefur komið fram, bæði í framsögu hv. þingkonu Steinunnar Þóru Árnadóttur og þeim umræðum sem hér hafa átt sér stað, er skýrsla Ríkisendurskoðunar afar skýr um það að stjórnsýsla og lagaframkvæmd hafi verið óviðunandi í rauninni og að það sé mjög bagalegt, ekki síst vegna þess að atvinnuvegurinn hefur verið í mjög hröðum vexti. Þessi vöxtur hefur því orðið í ákveðnu tómarúmi og stjórnsýslan og lagaframkvæmdin verið að einhverju leyti eftir á. Og nú vil ég að það komi skýrt fram að þar er ekki við atvinnuveginn sem slíkan að sakast heldur auðvitað við þau sem setja umgjörðina, við löggjafann og við framkvæmd löggjafarinnar eins og hún hefur verið framkvæmd af ráðuneytum sem hafa haft umsjón með þessari atvinnugrein. Þetta hefur verið kapp án mikillar forsjár og ég hef leyft mér að orða það þannig að þetta sé svolítið atvinnuuppbygging með íslenska laginu. Okkur liggur alltaf mjög mikið á. Við erum enn þá með hugarfarið að bjarga verðmætum í aflahrotunum í stað þess að gefa okkur þann tíma sem nauðsynlegur er til þess að hafa umgjörð rekstrarins, þá bæði atvinnuvegarins, eftirlitsins og umhverfisverndarinnar, í eins góðu lagi og hægt er.

Ég staldra við það einna helst að við erum enn stödd þar, u.þ.b. 20 árum eftir að fiskeldi fór aftur af stað á Íslandi og hafandi ákveðnar vörður á leiðinni, árið 2008, 2014 og 2019 með lagasetningu, að við erum í rauninni enn að úthluta mjög mikilvægum náttúruverðmætum án endurgjalds. Við erum algerlega með allt niðrum okkur, ætla ég að segja, þegar kemur að því að greitt sé fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum. Í þessu tilviki eru það eldissvæðin eða sem sagt hámark lífmassa á eldissvæðunum sem eru í raun hin takmörkuðu gæði. Það var og er markmið laganna frá 2019 að tryggja ríkissjóði endurgjald vegna nýtingar hafsvæða í íslenskri lögsögu. Ég ætla að halda því fram að við höfum orðið af mjög mikilvægri tekjuöflun með því að hafa þetta ekki í lagi. Það gerðist síðast, ef ég man rétt, við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins síðasta fyrir þetta ár. Það var búið að boða aukna gjaldtöku en henni var frestað og það taldi hundruð milljónir króna.

En eitt er alveg víst í umfjöllun um þessa skýrslu, henni hefur í raun verið vel tekið af öllum umsagnaraðilum og öllum sem komu á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, hvaðan sem var innan úr kerfinu og líka frá atvinnurekendunum sjálfum. Auðvitað nálgast hagsmunaaðilar þetta viðfangsefni frá ólíkum áttum. Það kemur mjög mikil gagnrýni frá t.d. handhöfum veiðileyfa í ám þar sem villti laxinn er, veiðiréttarhöfum, og einnig frá umhverfissamtökum eins og Landvernd og fleirum. Ég hygg hins vegar að það hafi verið mjög skynsamlegt af fyrirtækjunum og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi að taka þessari skýrslu vel og uppbyggilega, enda er það í rauninni eina leiðin fram á við í þessu máli.

Svo er það auðvitað eftirlitsgeirinn, hann hefur nú fengið svolitla umræðu hér í dag og er svolítið sérkapítuli út af fyrir sig. En ég held að við verðum að horfast í augu við það að með skýrum lagaramma og góðu regluverki þarf líka gott eftirlit. Oft heyrist því fleygt að hér sé einhver opinber eftirlitsiðnaður. Eftirlitið tryggir jafnræði á markaði, það tryggir góða samkeppni, það tryggir fagmennsku og það tryggir umhverfisvernd. Þess vegna þarf það að vera í lagi. Það kom mjög skýrt fram í máli fulltrúa úr sveitarstjórnum, bæði fyrir vestan og austan, að þau hefðu margoft bent á þetta, skort á góðu eftirliti og líka að það væri ekki nærtækt, að það væri ekki í heimabyggð. Þau gengu reyndar svo langt að segja við okkur að það væri ekkert í þessari skýrslu sem í sjálfu sér kæmi þeim á óvart. En auðvitað fagna þau atvinnuuppbyggingunni, skárra væri það.

Við erum í rauninni með tvo póla svolítið í þessari umræðu úti í samfélaginu. Það eru kannski þau sem ekki bara fagna þessari uppbyggingu heldur vilja hana sem mesta og stundum mjög hraða og svo hinn póllinn sem í raun kannski vill loka. Ég held að hvorugur kosturinn sé raunhæfur. Ég held að okkar verkefni hér, og það kemur svo skýrt fram í þessari skýrslu, sé að setja betri umgjörð utan um atvinnuveginn, fara að ábendingum Ríkisendurskoðunar, vinna almennilega úr þeim og við munum þurfa að fylgja því eftir hér á hinu háa Alþingi. Ég geri mér vonir um að hæstv. matvælaráðherra vinni þetta áfram af fullri einurð og fari að þeim ábendingum sem hér hafa komið fram. Þær eru mjög mikilvægar. Ég mun sem þingkona Samfylkingarinnar fylgja því mjög fast eftir að það verði innheimt gjald fyrir aðgang að takmarkaðri auðlind af því að þannig verðum við Íslendingar að umgangast okkar náttúrulegu auðlindir, okkur leyfist ekki annað, og í því felst m.a. sjálfbær nálgun á atvinnuveginn.

Það er mikil gróðavon í þessum atvinnuvegi og við vitum það og þegar hún er til staðar þá vilja fyrirtæki og fólk oft fara mjög hratt. Þess vegna er það enn brýnna að fara með ýtrustu varúð þegar kemur að umhverfisverndinni, áhættumatinu og burðarþolsmatinu. Þetta eru lykilatriði í umhverfi þessarar atvinnugreinar og í sjókvíaeldinu og við megum ekki fúska. Við verðum að stunda fagleg vinnubrögð og fara að ráðleggingum þeirra opinberu vísindarannsóknastofnana og þeirra sem best þekkja til og auðvitað þarf það fjármagn að koma frá ríkissjóði og ekki að bjóða stofnunum eins og Hafrannsóknastofnun upp á það að sækja í samkeppnissjóð um lögbundin eftirlitsverkefni. Þannig má það ekki vera. Það er í rauninni okkur til vansa að það hafi verið þannig.

Hér er ég að reyna á mjög stuttum tíma að fara með hraði yfir þessa mikilvægu skýrslu sem ég er mjög ánægð með og ég er mjög ánægð með það að við höfðum næstum öll náð saman um álitið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég vil gjarnan að við tökum höndum saman um að fylgja þessari skýrslu enn betur eftir.