skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit.
Herra forseti. Álit meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrslu ríkisendurskoðanda um sjókvíaeldi er um margt gott. Það er ítarlegt og vandað til verka og umfjöllunin er tæmandi að manni sýnist. Það er ánægjulegt að það hafi náðst breið pólitísk samstaða meðal nefndarmanna um meginatriði skýrslunnar og þau tilmæli sem er að finna í þessu áliti. Margt er gott eins og ég ætla að rekja hér en það er líka annað sem ég er ekki alveg jafn sammála, það er eins og gengur og gerist. Samhliða þessu þá er óhjákvæmilegt að fjalla líka aðeins um skýrslu ríkisendurskoðanda sjálfs og ég vil í þessari ræðu minni tæpa á ýmsum athugasemdum um þau atriði og halda til haga.
Grundvallaratriðin í þessari umræðu eru tvö að mínu mati. Í fyrsta lagi fjallar skýrsla ríkisendurskoðanda um stjórnsýsluna, ekki atvinnugreinina. Ýmislegt sem hefur verið látið falla í opinberri umræðu í og í þessum þingsal um atvinnugreinina á alls ekki rétt á sér. Þetta er mikilvæg atvinnugrein, hún er umhverfisvæn, hún er sjálfbær, hún skilar gríðarlega miklum arði fyrir þjóðina og það er ekki hægt að leggja gagnrýni ríkisendurskoðanda á stjórnsýsluna að jöfnu við það að dæma heila atvinnugrein. Það er ekki boðlegt. Hitt atriðið er að ef við föllumst á meginniðurstöður ríkisendurskoðanda um að stjórnsýslan hafi reynst veikburða og brotakennd og ekki í stakk búin til að takast á við aukin umsvif greinarinnar, þá er heldur ekki hægt að horfa fram hjá því að greinin býr við gríðarlega umfangsmikið og flókið regluverk. Það er kannski ástæðan fyrir því að stjórnsýslan hefur ekki alveg náð tökum á því hvernig á að fara með virknina í stjórnsýslunni, bregðast við umsóknum og afgreiða umsóknir eða hafa eftirlit með greininni.
Þessar 23 ábendingar ríkisendurskoðanda fjalla að mestu um aukið eftirlit, að herða skilyrði, hækka gjaldtöku o.s.frv. En ég verð að segja það, herra forseti, að í skýrslu ríkisendurskoðanda er hvergi rakið heildstætt eða útskýrt nægilega vel að hvaða leyti þetta eftirlit er ekki nóg. Með öðrum orðum, það er ekki útskýrt hvaða glæpur hafi verið framinn í þessari glæpasögu. Það eru engar haldbærar upplýsingar í skýrslunni eða neinar rannsóknir sem benda til þess að til að mynda umhverfinu stafi einhver hætta af þessari starfsemi, þvert á móti. Það er einungis fullyrt að það þurfi meira, betra, sterkara, öflugra og skilvirkara eftirlit. Ég get nefnt dæmi. Í skýrslunni er rakið að áður hafði fyrirtækjum borið að senda Matvælastofnun ýmsar upplýsingar um framleiðsluna, framleiðslumagn, fóður, afföll og fleira mánaðarlega með rafrænum hætti. Það er það fyrirkomulag sem er komið á. Það segir í skýrslunni að Matvælastofnun vilji fá þessar upplýsingar vikulega en til þess þurfi lagabreytingu. Það er ekki útskýrt hverju máli það skiptir að fá þessar upplýsingar um framleiðslumagn vikulega í stað mánaðarlega. Hvað er það sem vantar upp á? Þess vegna tel ég mikilvægt að þegar við erum að fjalla um þetta álit meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og sjáum í hvaða vinnu stjórnvöld eru vegna þessarar atvinnugreinar þá spyrjum við nákvæmlega þessara spurninga. Þó að við föllumst á að, já, það þurfi meira eftirlit, þá þarf líka að svara því til hvers það er og hvað þurfi að ná utan um.
Það er ein athugasemd sem Ríkisendurskoðun gerir sem er nokkur sjálfsögð, þ.e. að afgreiðsla í stjórnsýslunni, hjá Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun hafi verið hæg og hafi tekið tíma. En ég sakna þess að í skýrslunni hafi ekki verið tekið á því í hversu mörg ár umsóknir og erindi voru að velkjast um í stjórnsýslunni án þess að nokkur svör bárust. Við erum ekki að tala um mánuði, við erum að tala um fjöldamörg ár. Það hefði verið fullt tilefni af hálfu ríkisendurskoðanda að fara ofan í saumana á því máli. En það var ekki gert og það er miður.
Eins vil ég nefna, herra forseti, það sem fram kemur um áhættumat erfðablöndunar. Það er líka komið inn á þetta í áliti meiri hlutans. Ríkisendurskoðandi gagnrýnir Hafró fyrir að hafa breytt aðferðafræði og stuðst við lífmassa í stað framleiðslu í áhættumatinu og setur út á þá stuðla sem voru settir og segir að það hafi komið frá hagsmunaaðilum, en hafi ekki fengið það staðfest. Ég sé ekki betur, herra forseti, en að þetta sé gríðarlega alvarleg ásökun af hálfu ríkisendurskoðanda í garð Hafrannsóknastofnunar. Það hefði verið einfalt að spyrja Hafrannsóknastofnun og fá mjög eðlilegar útskýringar á því hverju það sætti en það er ekki gert og það er miður að í áliti meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er ekki komið betur inn á þetta atriði.
Annað sem kemur fram í skýrslunni er í niðurstöðukafla þar sem ríkisendurskoðandi er að gagnrýna stefnulausa uppbyggingu án umræðu og atbeina stjórnvalda og að verðmætum hafi verið úthlutað án endurgjalds. Þetta fær ekki staðist. Rekjum þetta aðeins. Auglýsingin frá 2004 friðaði nær allt Ísland. Heildarlög um fiskeldi voru sett 2008. Lögunum var breytt 2014 og þar er burðarþol lögfest og stjórnsýslan efld. Lög um haf- og strandsvæði voru sett 2018 og fiskeldislögunum var breytt 2019 þar sem áhættumatið var lögfest, fyrirkomulag útboðs á svæðum innleitt og gjaldtaka lögfest. Á þessum árum er framleiðslan ekkert svo mikil. Hún fer að taka við sér upp úr 2018, 2019, eins og sjá má í skýrslu ríkisendurskoðanda. Þá má alveg spyrja: Hver var þá hin stefnulausa uppbygging í ljósi alls þess regluverks sem hafði verið sett? Þessu svarar ríkisendurskoðandi ekki nægilega vel. Það er ekki heldur farið inn á það að síðan 2019 þá hafa nær engin ný leyfi verði gefin út, það hefur ekki verið farið í uppboð á svæðum, enginn fjörður hefur verið burðarþolsmetinn síðan 2018 og úthlutun eldissvæða er ekki hafin. Er þetta stefnulaus uppbygging? Það er augljóst að svo er ekki.
Varðandi það að verðmætum sé úthlutað án endurgjalds þá verðum við að hafa í huga að 2019 var tekinn upp auðlindaskattur, fiskeldisgjald. Atvinnugreinin greiðir ásamt sjávarútvegi aukalega til ríkissjóðs, ekki neinar aðrar atvinnugreinar gera það. Frá 2019 var líka lögfest uppboðsfyrirkomulag á svæðum til viðbótar við fiskeldisgjaldið. Fiskeldið hefur ekki fengið neina ívilnunarsamninga, enga fyrirgreiðslu vegna skatta, eins og til að mynda áliðnaðurinn, og til viðbótar greiðir greinin gjald í umhverfissjóð fiskeldis. Þetta eru þau atriði sem voru mjög ofarlega í umræðunni þegar skýrsla ríkisendurskoðanda kom út, en fá ekki staðist.
Herra forseti. Það hefði verið nær að skýrsla ríkisendurskoðanda hefði verið eitthvað á þessa leið: Uppbygging fiskeldis gengur heilt yfir vel, hefur mjög jákvæð áhrif á efnahagslíf og byggðaþróun. Vaxtarhraðinn er vissulega mikill en það er fagnaðarefni. Það eru stórar fjárfestingar í búnaði og mannvirkjum að eiga sér stað. Þessi ár hafa vissulega falið í sér áskorun fyrir stjórnsýsluna að bregðast við og afgreiða mál innan tiltekins frests, vissulega, og þar er hægt að gera betur á ýmsum sviðum. Í mörgu af því sem kemur fram í áliti meiri hluta stjórnskipunar eftirlitsnefndar er tekið undir það, það sem snýr að virkninni í stjórnsýslunni og samstarfi og einföldun. Þá er horft til þess að ráðuneyti og stjórnsýslan hafa ekki náð að ráðast í allar þær aðgerðir sem löggjafinn hefur falið framkvæmdarvaldinu að ráðast í eins og útboð á svæðum og að klára skipulag strandsvæða en sú vinna er í fullum gangi. Þetta hefði verið eðlileg niðurstaða ríkisendurskoðanda og þetta hefði verið það sem við hefðum átt að ræða. Hvar er stjórnsýslan ekki nógu burðug? Já, ræðum um það. Ef það þarf meira eftirlit þá þurfum við að skoða það nákvæmlega. En því miður þá fór þessi umræða um of víðan völl og snerist um gildi fiskeldis sem atvinnugreinar og það var mjög miður.