Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 112. fundur, 30. maí 2023.
breyting á starfsáætlun.
Forsætisnefnd ákvað í dag, í samráði við formenn þingflokka, að gera þær breytingar á starfsáætlun Alþingis að föstudagurinn 2. júní verði nefndadagur. Sá dagur átti að vera þingfundadagur samkvæmt starfsáætlun. Forseti vill jafnframt geta þess að á fimmtudaginn 1. júní er gert ráð fyrir að þingfundur hefjist 13.30 en ekki 10.30 eins og áður hafði verið áformað.