Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 1508, um úrræði til að komast á vinnumarkað, frá Evu Sjöfn Helgadóttur, þskj. 630, um fjölgun starfsfólks og embættismanna, frá Helgu Völu Helgadóttur, á þskj. 1375, um kostnað vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, frá Ingu Sæland, á þskj. 1296, um langvinn áhrif Covid-19, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 1394, um stýrihóp og sérfræðingateymi um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, á þskj. 1485, um uppbætur á lífeyri, frá Guðmundi Inga Kristinssyni, á þskj. 1601, um stöðu ungra langveikra einstaklinga, frá Ástrós Rut Sigurðardóttur, á þskj. 1052, um lögbundið eftirlit og eftirfylgni með réttindum fatlaðra barna, frá Oddnýju G. Harðardóttur, á þskj. 1625, um ráð, nefndir, stjórnir, starfshópa og stýrihópa, frá Bryndísi Haraldsdóttur, á þskj. 1679, um ellilífeyri, frá Viðari Eggertssyni, og að lokum á þskj. 1151, um ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku, frá Ásmundi Friðrikssyni.

Þá hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1383, um hlustun samskipta á milli sakborninga og verjenda þeirra, frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1648, um riðuveiki, frá Vilhjálmi Árnasyni. Að lokum hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1668, um ávísun ópíóíðalyfja, frá Indriða Inga Stefánssyni.