tollfrjáls innflutningur frá Úkraínu.
Virðulegi forseti. Á morgun rennur út frestur til að framlengja undanþágu fyrir tollfrjálsan innflutning á landbúnaðarvörum frá Úkraínu. Eins og þekkt er þá berst úkraínska þjóðin fyrir tilverurétti sínum gegn innrásarher Rússa. Þjóðin hefur fórnað sér til að verja Evrópu og hinn vestræna heim fyrir öfgaöflum og standa vörð um grundvallargildi lýðræðis og frelsis í álfunni. Sú samstaða er mjög mikilvæg og hefur djúpstæða merkingu. Tollfrjáls innflutningur á landbúnaðarafurðum til Íslands frá Úkraínu er ekki einungis táknrænn stuðningur okkar í þessari baráttu sem skiptir okkur öll máli heldur ein leið fyrir okkur sem þjóð til að leggja okkar af mörkum í þessu stríði. Við höfum vissulega gert það með margvíslegum hætti, nú í síðustu viku var samþykkt hér á þingi að leggja til fjármagn til að byggja upp færanlega spítala í Úkraínu, en það vekur að mínu mati furðu að sama fólk og samþykkti þá ágætu ráðstöfun virðist núna vera hikandi við að framlengja þessa mjög svo skilvirku leið til að styðja við Úkraínu.
Þess vegna vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Á ekki að framlengja þessa undanþágu fyrir tollfrjálsan innflutning á landbúnaðarvörum frá Úkraínu og hvað kemur í veg fyrir að svo verði gert?