aðgerðir í efnahagsmálum.
Herra forseti. Það er allt í rugli, það vissum við. En nú er lítið eftir af þinginu og ástandið í efnahagsmálum og á vinnumarkaði er algerlega óviðunandi. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Er ekki rétt að nota þann skamma tíma sem eftir er af þessu þingi til að einbeita sér að þeim málum, að efnahagsástandinu, að vinnumarkaðnum, að verðbólgunni, að stöðunni á húsnæðismarkaði? Og áður en hæstv. forsætisráðherra bendir á að það sé sérstök umræða um efnahagsmál hér á eftir þá veit ég það. En þarf ekki að nota allan þennan tíma til að einbeita sér að því að koma hér á einhverjum lausnum, því að við getum ekki farið inn í sumarið án þess að bregðast við þessu ástandi? Er ekki rétt að nota tíma þingsins, nota tíma nefndanna og ég tala nú ekki um ríkisstjórnarinnar og ráðherranefndar um efnahagsmál til að koma með lausnir á þessum vanda áður en þingið fer í sumarfrí? Ég myndi telja aðkallandi að þingið einbeitti sér að þessu og ráðherrarnir líka þó að þeir þurfi þá kannski að halda einhverja næturfundi, sem er fullt tilefni til. Þeir getað pantað pitsur eða svið eða hvað annað á kostnað skattgreiðenda og enginn mun kvarta yfir því ef lausnirnar koma. En lausnirnar þurfa að koma núna. Við getum ekki farið inn í sumarið í þessu fullkomna óvissuástandi og við getum ekki látið þessa fáu daga sem eftir eru af þinginu líða án þess að brugðist sé við þessu neyðarástandi á öllum þessum sviðum. Þarf ekki hæstv. forsætisráðherra að segja hæstv. félagsmálaráðherra að koma nú með frumvarpið sem átti að vera tilbúið um ríkissáttasemjara, því að það mun þurfa á því regluverki að halda þegar fram líða stundir? Það breytir ekki því að ríkisstjórnin þarf núna, áður en þingið klárast, að sýna á spilin og koma með alvöruaðgerðir. Við höfum heyrt allar yfirlýsingarnar um að þetta sé í skoðun og að kannski þurfi að spara aðeins meira, eins og sagt var fyrir kynningu fjármálaáætlunarinnar. (Forseti hringir.) En nú þurfum við aðgerðir, alvöruhugmyndir sem við getum rætt og afgreitt.