153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðir í efnahagsmálum.

[13:43]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrirspurnina en fyrst og fremst var kannski um yfirlýsingu að ræða, sem ég hef nú heyrt áður hér úr þessum stóli þar sem litið er fram hjá því sem hefur verið gert, er verið að gera og stendur til að gera. Hv. þingmaður segist ekki vilja heyra um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar eins og þær birtast í fjármálaáætlun. En ég verð bara að minna hv. þingmann á að við erum að vinna samkvæmt fjárlögum ársins í ár sem samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum styðja við verðbólgumarkmið, styðja við aðgerðir Seðlabankans. Við erum að vinna að því hvernig við getum aukið enn aðhald á komandi árum út frá ábendingum sama aðila þannig að við erum að gera það sem þarf án þess að vera að panta pitsur á kostnað skattgreiðenda. Þess þarf ekki. Við erum einfaldlega að gera það sem þarf til að styðja við það verkefni Seðlabankans sem er að ná niður verðbólgunni. Hvað varðar vinnumarkaðinn, en hv. þingmaður segir að þar sé allt í uppnámi, þá bendi ég á að það eru auðvitað samningar í gildi víðast. Vissulega eru verkfallsaðgerðir núna varðandi samninga við sveitarfélög. Við höfum átt gott samtal við aðila vinnumarkaðarins í aðdraganda þeirra skammtímasamninga sem voru gerðir um síðustu áramót og við munum eiga áframhaldandi samtal um aðgerðir til að tryggja hér langtímasamninga um næstu áramót. Þar skiptir verulegu máli að allir leggi sitt af mörkum. Ég ætla hins vegar ekki að fara í þann leik sem hefur verið ansi mikið leikinn að undanförnu að benda á einstaka sökudólga vegna ástandsins. Staðreyndin er sú að hér á Íslandi eru gríðarlega mikil efnahagsumsvif. Hér er lítið atvinnuleysi. Hér er mikill hagvöxtur, spáð meiri hagvexti en áður var spáð og við sjáum verðbólguna birtast þannig. Það er ekki sama staða hér og víða í nágrannalöndum okkar þar sem við sjáum vaxandi atvinnuleysi, samdrátt og háa verðbólgu. Þannig að við erum í raun og veru í góðri stöðu til að takast á við þetta og ég ætla að leyfa mér að trúa því að nýjasta verðbólgumælingin — án þess að hrósa einhverju happi, ég held að það sé ekki tímabært en ég hef trú á því að verðbólgan fari niður og þetta sé skýrt merki um það.