aðgerðir í efnahagsmálum.
Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra talar eins og hann sé forsætisráðherra einhvers allt annars lands og segir að hér sé allt í góðu, ekki hvað síst vegna þess að það sé þensla. Því skyldi ekki vera þensla með gegndarlausri útgjaldaaukningu ríkisins, eins og við höfum horft upp á að undanförnu? Og hver heldur því fram að ríkisstjórnin sé að leggja sitt af mörkum við að takast á við verðbólguna? Ekki Seðlabankinn. Ég hef ekki heyrt neina álitsgjafa úti í bæ halda því fram. Ekki einu sinni sumir ráðherrar flokksins, a.m.k. ekki Sjálfstæðisflokksins, halda því fram að ríkisstjórnin sé að standa sig í því að takast á við verðbólguna með stöðugum og vaxandi útgjöldum. Er engin von til þess að þessi ríkisstjórn átti sig á ástandinu og taki þátt í því að ná tökum á því? Ég er ekki einu sinni að biðja hana um að leiða það, bara að taka þátt og hætta að vera í einhverjum ímynduðum veruleika.