153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

skerðing almannatrygginga og frestun launahækkana.

[13:53]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið en hún skautaði vel fram hjá því að svara því hvort hún væri tilbúin til að sjá til þess að fresta öllum launahækkunum æðstu ráðamanna þjóðarinnar þangað til launasamningum væri lokið og við sæjum fram á það hvernig aukafjárveiting yrði til lífeyrisþega sem er búið að boða vegna verðbólgu. 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust, frumvarp Flokks fólksins myndi að stórum hluta eyða út þessum 50.000 kr. skerðingum sem eru á borðinu. Gerir hæstv. forsætisráðherra sér grein fyrir því að það er á annan tug skerðingarflokka í kerfinu? Og skerðingarflokkarnir eru þannig að þeir fara yfir í félagsbótakerfið. Gerir hæstv. forsætisráðherra sér grein fyrir því að þeir sem eru að fá skerðingar — og af sumum er tekin hver einasta króna og ég hef lent í því sjálfur — þurfa að kæra skattframkvæmd og alls konar vesen aftur í tímann? Þetta eru ekki bara skerðingar, þetta er líka (Forseti hringir.) skattalegt. Þetta veldur fólki þvílíkum erfiðleikum og fjárhagslegu tjóni (Forseti hringir.) að það hlýtur að vera kominn tími til að hætta þessu.