laun æðstu embættismanna.
Forseti. Forsætisráðherra hefur kannski ekki séð tillögu mína og þingflokks Pírata um ákveðna þjóðarsátt um laun kjörinna fulltrúa, starfsstétta grunninnviða og annarra mikilvægra starfsstétta. Lágmarkskjör. Merkilegt í rauninni þegar verið er að segja hérna að það hafi enginn komið með tillögur, þær eru til. Við skulum aðeins huga að því. Hæstv. ráðherra talar hérna um gölluð lög, það þurfi að endurskoða lög um almannatryggingar. Við vitum það öll. Þar eru ákvæði um að það eigi að taka tillit til launaþróunar. Það hefur aldrei verið gert. Laun æðstu ráðamanna taka tillit til launaþróunar, það er útreiknað samkvæmt Hagstofunni. Það er mjög áhugavert. En á því er galli. Í kvöldfréttum í gær talaði ráðherra um að hérna værum við bara með lög sem tóku við af slæmum lögum en þessi lög eru ekki enn þá fullkomin, t.d. ef það er krónutöluhækkun, þá skilar hún sér ekki hingað inn. Ef sagt er að það sé þak á hækkun hæstu launa þá skilar það sér ekki hingað inn. Það er galli á þeim lögum. Við getum ekki bara notað það að hér séu lög og að við eigum að fara eftir þeim þegar við fáum þannig ástand að það er augljóst að lögin eru gölluð. Við erum löggjafarsamkundan og það er meiri hlutinn sem tekur sér það vald að ráða því hvernig hlutir fara fram innan þessa salar. Ég tel að það sé á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að koma með lagfæringu á þessum augljóslega gölluðu lögum. Við höfum lagt slíkar tillögur fram áður. Þeim hefur verið hafnað. Boltinn er því í höndum ráðherra. Ætlar ráðherra að gera eitthvað við því?