laun æðstu embættismanna.
Herra forseti. Þegar kjararáð var lagt niður — og ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir fyrirspurnina — þá var það gert með frumvarpi hér í júní 2019. Vissulega er það rétt að það studdu ekki allir það frumvarp. Það var stór hluti þingmanna sem greiddi ekki atkvæði, lagðist þó ekki gegn breytingunni enda voru ýmsir málsmetandi aðilar sem studdu þessa breytingu og vildu hverfa frá hinu fyrra fyrirkomulagi. Ég hygg nú að hv. þingmaður sé sammála mér um að það hafi ekki verið gott fyrirkomulag heldur. Það sem gert var í aðdraganda þessara laga, svo það sé rifjað upp, þó að ég hafi ekki mælt sjálf fyrir þessu frumvarpi þá vissulega kom ég að aðdragandanum og skipaði starfshóp sem skoðaði hvernig þessum málum er háttað annars staðar og lagt var til fyrirkomulag sem er nokkuð sambærilegt við það sem við sjáum víða annars staðar á Norðurlöndum þar sem þessi mál að sjálfsögðu hafa líka verið bitbein. Ég hef ekki kynnt mér nákvæmlega tillögur þingflokks Pírata um þetta mál og hvort þau leggi þá til að við tökum upp krónutöluhækkanir í staðinn fyrir prósentuhækkanir, hvort þau leggi þá til að það eigi við um aðra forstöðumenn sem heyra ekki undir lögin um laun æðstu embættismanna, eins og forstjóra Landspítala, sýslumenn og aðra þá sem heyra undir það launafyrirkomulag sem er undir stjórn fjármálaráðuneytis. Ég ítreka bara það sem ég segi hér og sagði áðan: Að sjálfsögðu erum við til umræðu um breytingar á fyrirkomulagi en ég tel líka að það sé eðlilegt að þetta fyrirkomulag sé bundið í lög, að það sé tryggt með því fyrirkomulagi að það sé gagnsætt og fyrirsjáanlegt og tryggt að æðstu embættismenn, þar með talið þau sem hér sitja, séu ekki leiðandi. Það var auðvitað gert með þessum lögum með því að tryggja að við fylgjum reglulegu meðaltali launa ríkisstarfsmanna. Það var tryggt þannig að þessir aðilar sem hér sitja séu ekki að leiða launaþróun í landinu og ég hygg að það sé líka atriði sem við ættum að vera sammála um.