laun æðstu embættismanna.
Forseti. Almennt séð er ég hlynntur fyrirkomulaginu eins og það er núna en það eru gallar á því. Til dæmis þegar lífskjarasamningarnir voru gerðir þá voru krónutöluhækkanir. Og þegar krónutöluhækkanir eru settar og þýddar yfir í einhverja prósentuhækkun í þessum útreikningum hjá Hagstofunni þá endar það í miklu hærri krónutölu fyrir þingmanninn. Ef opinberir starfsmenn hækka um 50.000 kr. og það er 5% launahækkun í rauninni þegar það er bara umreiknað sem slíkt og svo er sett 5% hækkun á þingmenn þá er það miklu meira en 50.000 kr. Þar liggur hundurinn grafinn. Þetta var líka vandamál með lífskjarasamningana í hina áttina, varðandi almannatryggingarnar. Þar fengu þeir hópar ekki krónutöluhækkunina sem var hærri en prósentuhækkunin sem þau fengu. Við eigum í þessum vanda með hlutföll annars vegar og krónutölur hins vegar sem er ekki að leggjast út á sanngjarnan hátt á milli allra hópa. Þetta þurfum við að laga og ég kalla eftir aðgerðum frá ríkisstjórninni (Forseti hringir.) sem tekur sér völd hérna og á þá að fara með þau af ábyrgð.