laun æðstu embættismanna.
Herra forseti. Ríkisstjórnin tekur sér ekkert völd, hún nýtur bara meirihlutastuðnings á þinginu þannig að ég verð að gera athugasemd við þetta orðalag sem gefur til kynna að hér sé um eitthvert valdarán að ræða. Síðan vil ég nefna það að auðvitað er oft og iðulega samið um bæði um krónutöluhækkanir og prósentuhækkanir í kjarasamningum. Það er mismunandi og mismunandi hvað lögð er áhersla á við samningaborðið sem við nota bene sitjum ekki við hér. Við höfum ekki réttinn til að semja um okkar eigin kaup og kjör eða semja um laun út frá vinnuframlagi, svo dæmi sé tekið, sem mætti algerlega ræða hér á þingi. Ég væri alveg til í það.
Ég vil líka segja það að þegar við horfum til þróunar á greiðslum almannatrygginga þá var um áramót bæði horft til verðlagsþróunar og kaupmáttaraukningar og eins og kunnugt er var ákveðið að hækka bætur almannatrygginga um 6% um áramót, þrátt fyrir að gert væri ráð fyrir 4,9% verðbólgu, til þess að reyna að tryggja þessum hópi sambærilega kaupmáttaraukningu og öðrum hópum. (Forseti hringir.) Þannig að það hefur auðvitað líka verið horft til þess, af því að hv. þingmaður nefndi það í fyrri spurningu.