153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

viðbrögð við fjölgun krabbameinstilfella.

[14:08]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji að heilbrigðiskerfið ráði að óbreyttu við að sinna svo vel sé öllum þeim sem greinast með krabbamein hér á landi á næstu árum. Ég kalla eftir skýrum svörum og skýrum áætlunum um þetta frá hæstv. ráðherra. Núgildandi krabbameinsáætlun er óskýr og auk þess er augljóslega ekki farið eftir henni að öllu leyti. Það er mikið áfall að greinast með krabbamein enda lífsógnandi sjúkdómur þó að oftast sé hægt að lækna krabbamein eða lifa með því. Það skiptir miklu máli að fá upplýsingar og svör við spurningum sem vakna eftir greiningu. Ljósið er endurhæfingar- og þekkingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra sem veitir sérsniðna endurhæfingu og stuðning. Komur þangað voru tæplega 30.000 á síðasta ári og hafði fjölgað um 186% á síðustu tíu árum en fjárframlög frá ríkinu til starfseminnar hafa engan veginn verið í sama takti og söfnunarfé heldur starfseminni gangandi. Finnst hæstv. ráðherra ásættanlegt ef Ljósið þyrfti að vísa fólki frá vegna fjárskorts?