153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

viðbrögð við fjölgun krabbameinstilfella.

[14:09]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Það verður að taka það fram hér að margar af þeim aðgerðum sem heyra undir krabbameinsáætlun eru þegar komnar til framkvæmda með því fé sem lá fyrir í fjármálaáætlun, auk þess sem margar aðgerðir snúa að breyttu verklagi. Síðan mun það í framtíðinni krefjast aukins fjármagns, eins og hv. þingmaður kom inn á og ég sagði hér í fyrra andsvari, að við okkur blasir sú staðreynd að við þurfum að efla endurhæfinguna verulega. Ég get sagt frá því hér að það er búið að taka upp samtal milli Sjúkratrygginga og m.a. Ljóssins um að efla þann þátt með þeim og við sjáum þetta sem blasir við okkur birtast m.a. þar.

Þá vil ég draga fram að þverfaglegt óháð skimunarráð embættis landlæknis var stórt skref í áætluninni og framkvæmd leghálsskimana hefur nú þegar breyst. Skimunin fram undan og lýðheilsa og forvarnir (Forseti hringir.) munu skipta verulega miklu máli. En varðandi endurhæfinguna blasir við okkur að við þurfum að efla það úrræði verulega.