153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

staða leigjenda og aðgerðir á leigumarkaði.

[14:15]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég held nefnilega, og tek undir það, að það er auðvitað verið að gera mjög margt í öðrum löndum og af því að hæstv. ráðherra vitnaði hér til Danmerkur þá eru þar einmitt stífari reglur eins og við þekkjum, líka um búsetu og annað slíkt. Ég fagna því að það sé verið að skoða m.a. Airbnb því að við þekkjum það mætavel hversu mikill þrýstingurinn er. Þá er spurning: Er eitthvað af því sem getur komið til framkvæmda án þess að það þurfi að fara í gegnum lagaferli Alþingis, eitthvað sem gæti gerst á þessu ári? Ég hef áhyggjur af því að þessar breytingar sem gerðar voru á húsaleigu vegna skráningar samninga og breytinga á leigufjárhæð í desember gangi kannski ekki nógu langt. Þar var m.a. rætt um þennan húsnæðisgrunn og ég spyr ráðherrann hvernig gengur með það. Ég spyr líka hvort hann telji að nægilega langt hafi verið gengið í því frumvarpi til að mæta þessari stöðu sem við stöndum núna frammi fyrir.