staða leigjenda og aðgerðir á leigumarkaði.
Virðulegur forseti. Eitt af því sem er einmitt til skoðunar í starfshópnum er þessi skráningarskylda sem er frumvarp sem kom til þingsins, en því miður var gildissvið þess þrengt í meðförum þingsins. Við höfum þar af leiðandi ekki haft tækifæri til að fá þær upplýsingar sem er þörf á til að geta brugðist við með réttum hætti á leigumarkaðnum. Það er því til skoðunar að koma aftur inn með það, en á sama tíma hefur líka verið skoðað hvort ekki sé hægt að deila þeim upplýsingum, sem vissulega eru til hjá Skattinum að einhverju leyti, betur með bæði Hagstofunni og þá HMS til að fá þessar upplýsingar fram, sem mér skildist að hefðu verið útskýringar þeirra þingmanna sem tóku þátt í því. Þetta er eitt af því sem þarf einfaldlega að vera til skoðunar. Svo er líka rétt að muna að þrátt fyrir þessar breytingar sem ég var að lýsa, að þessi þrýstingur hafi kannski fyrst og fremst orðið núna á þessu ári, þá vorum við í tvígang að hækka húsnæðisbætur á síðasta ári, bæði síðastliðið sumar um 10% og svo 13,8% um áramótin, og náðum þar af leiðandi að jafna þetta upp með öllum breytingum frá 2018. (Forseti hringir.) Þannig að hingað til hefur staðan verið þokkaleg, en hún fer versnandi.