Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

velsældarvísar.

1102. mál
[14:18]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að eiga hér samtal við hæstv. forsætisráðherra um velsældarvísa eða mælikvarða um hagsæld og lífsgæði. Hæstv. forsætisráðherra þekkir þetta verkefni býsna vel. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að sitja í starfshópi sem skilaði ákveðnum mælikvörðum og vinnu hvað þetta varðar þar sem lagðir voru til þessir mælikvarðar sem horft væri til. Í skýrslunni sem við skiluðum af okkur í september 2019 er komið inn á viðmiðunartímann og tímamörkin sem nýtt eru.

Virðulegur forseti. Þar segjum við:

„Mikilvægt er að gagnasöfnun sé reglubundin og gögn séu tímanleg, þ.e. eins nálægt viðmiðunartímabili og hægt er. Tíðni mælinga er lykilþáttur fyrir mælikvarða, sem eiga að rekja þróun hagsældar og lífsgæða yfir tíma. Það er heppilegast að nota mælingar sem er safnað á ársgrundvelli. Í sumum tilfellum er hægt að notast við mælingar, sem er safnað sjaldnar, eins og annað hvert ár. Mikilvægt er að tímanleiki mælinga sé viðunandi þannig að mælikvarðarnir komist sem næst því að gefa mynd af stöðunni eins og hún er í samtímanum.“

Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að ég spyr nú er vegna þess að við erum ekki búin að innleiða alla mælikvarðana. Enn þá eru einhverjir mælikvarðar í vinnslu og það hefur hrópað á mig í þeirri stöðu sem er uppi í dag þar sem þrótturinn í íslensku efnahagslífi er mikill og jafnvel aðeins of mikill og við á Íslandi höfum haft það býsna gott en erum núna að glíma við háa verðbólgu sem getur auðvitað haft ýmiss konar áhrif. Ég vil nú meina að þau áhrif séu ekki komin fram og að of oft sé skrattinn málaður á vegginn að því leyti, en þegar horft er á fjármálaáætlunina sem við í hv. fjárlaganefnd erum að vinna með þá erum við með þetta mælaborð þar sem horft er á þessa velsældarvísa og þar er staðan sú að það eru fjórir vísar sem eru neikvæðir.

Hugmyndafræðin á bak við svona velsældarvísa er auðvitað að við getum séð almennt hvert við stefnum og þar sem við erum að fara niður á við séu einhver ljós sem blikki: Þurfum við að bregðast við og þá hvernig?

Þessir fjórir mælikvarðar sem eru neikvæðir nú eru að fólk neiti sér um læknisþjónustu, sem er vissulega alvarlegt og ber að skoða og hvort nauðsynlegt sé að bregðast við með einhverjum hætti, það er kosningaþátttakan, það er verðbólgan og það eru þeir sem eru ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær er stefnt að því að ljúka innleiðingu velsældarvísanna, af því að hér eru ákveðnir vísar sem hefur ekki verið lokið við innleiðingu á? Eru öll ráðuneytin að nýta velsældarvísana til að meta velsæld? Hvaða aðgerðir ríkisstjórnar og Alþingis hafa skilað mælanlegum árangri samkvæmt velsældarvísunum? Og ef svo er, hver er sá árangur?