velsældarvísar.
Forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Hún er mjög mikilvæg. Það sem mér er kannski efst í huga er að ég veit að þegar Nýja-Sjáland tók ákvörðun um að færa hagkerfi sitt í átt að velsældarhagkerfi þá var ákveðið að setja 4%, ef mig misminnir ekki, af vergri landsframleiðslu í að þróa þetta velsældarhagkerfi, enda kannski segir það sig sjálft að þetta gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf að setja fjármagn í þetta til að þetta virki. Ég hef fengið fregnir af því að á Hagstofunni hafi verið einn starfsmaður sem náði ekkert að sinna þessu almennilega og þess vegna liggur á mér að spyrja — það væri fróðlegt að vita hversu mikil áhersla hefur verið á þetta verkefni í ljósi þess að það virðist hafa farið rosalega lítið af fjármunum í að ýta undir þetta.
Það var alveg ljóst frá byrjun að það er fullt af gögnum sem við erum ekki að afla. Þetta verkefni varpaði ljósi á þörfina á (Forseti hringir.) — ó, hvað þetta er stuttur tími, forseti — gagnaöflun í hinum ýmsu málaflokkum. Þannig að þetta er aðallega bara innlegg inn í umræðuna. Það væri fróðlegt að vita hvort það væri ekki æskilegt að fara að leggja aðeins meiri áherslu á þetta með fjármagni til þess að við náum að flýta (Forseti hringir.) þessu mikilvæga verkefni.