Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

velsældarvísar.

1102. mál
[14:30]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það er mín bjargfasta sannfæring að ef við náum einhvern veginn að umbreyta kerfinu okkar þannig að við séum að vinna með þessa mælikvarða, séum ekki eingöngu að horfa á efnahagslega mælikvarða, séum með gögn og upplýsingar sem við getum unnið greiningar út frá, þá trúi ég því að við munum taka betri ákvarðanir fyrir samfélagið. Mér finnst það vera hlutverk stjórnmálamanna að ræða ekki bara hina efnahagslegu hlið heldur líka bara hreinlega líðan fólksins í landinu, svo dæmi sé tekið. Ein af velsældaráherslunum er andlegt heilbrigði þar sem við höfum t.d. verið að verja auknum fjármunum í geðheilbrigðisþjónustu og hugað sérstaklega að andlegu heilbrigði í aðgerðum vegna áhrifa heimsfaraldurs. Þetta er líka dæmi sem ég tek um það, t.d. þegar ég ræði þessi mál á alþjóðavettvangi þar sem er töluverður áhugi á þessum málum, að við veljum að setja þessi mál í forgang, ekki vegna þess að við getum sýnt fram á að hér sé allt í himnalagi heldur einmitt vegna þess að við þurfum að bæta okkur í þessum málum.

Þegar við skoðum mælikvarðana þá hefur verið stuðst við spurningu í lífskjararannsókn Hagstofunnar til að mæla eigið mat einstaklinga á andlegri heilsu til að leggja mat á lífsánægju. Eitt af því sem við erum að skoða núna er hvort við eigum frekar að nýta velsældarmælikvarða embættis landlæknis sem er hannaður á grundvelli velsældarmælikvarða sem þróaður var í Skotlandi og byggir á fleiri spurningum sem gefa heildstæðari mynd af vellíðan og velsæld einstaklinga.

Þannig að augljóslega er þetta verkefni í þróun. Vegna þess hvernig til þess var stofnað, þar sem bæði meiri hluti og minni hluti komu að, þá vona ég að þetta verði eitthvað sem við höldum áfram að gera, líka þegar þessi ríkisstjórn verður ekki lengur við lýði heldur að þetta sé bara orðinn fastur passi.

Ég tek svo hjartanlega undir með hv. þingmanni, við eigum ekki að fara of hratt í að fjölga mælikvörðunum. En við eigum samt að þora það. Til dæmis hvað varðar heimilisofbeldi þá held ég að það blasi við að það sé mjög mikilvægur hluti þegar við erum með þessar tölur sem sýna umfang þess. Eins hvað varðar menninguna, (Forseti hringir.) því að í þessu ferli öllu höfum við séð að það er eitt af því sem þau ríki sem fremst standa eru að mæla til þess að mæla lífsgæði almennings.