auðkenningarleiðir.
Herra forseti. Í vor áttum við nokkur orðastað við hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra um aðgengi fatlaðra einstaklinga að rafrænni þjónustu. Tilefnið var munnleg fyrirspurn frá hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Tilefnið var kannski aðallega þær ítrekuðu fréttir sem við höfum heyrt af því hvernig rafræn skilríki geta verið óeðlilegur og nánast ókleifur þröskuldur fyrir fatlað fólk að þeirri þjónustu sem þau eiga að geta sótt sér. Í þeim umræðum veltum við því upp við hæstv. ráðherra hvort kannski mætti taka aðeins til í því hvar rafræn skilríki eru notuð, hvort það væri kannski verið að reisa of háa þröskulda of víða. Það þarf nefnilega að velja styrk auðkenningarleiðar í einhverju samræmi við viðkvæmni þeirrar þjónustu sem hún hleypir okkur að. Þannig ættum við ekki að þurfa fullkomnustu og öruggustu rafrænu skilríki til að geta pantað okkur tíma í hotjóga eða framlengt bók á bókasafni, en það er hins vegar raunin. Það er raunin og stefnan hjá stjórnvöldum virðist vera að fasa út mildari auðkenningarleiðir, auðkenningarleiðir með lægra fullvissustig en þó nógu mikla fullvissu til þess að það dugi til að hleypa okkur í alls konar þjónustu.
Ég legg því þessa fyrirspurn fyrir hæstv. ráðherra og spyr hvaða opinberu auðkenningarleiðir standi til boða sem uppfylli ólík fullvissustig og kannski hvaða framtíðarplön ríkisstjórnin hafi varðandi þau; við viljum nefnilega hafa þetta val. Síðan spyr ég hvaða mat fari fram til að tryggja að styrkur auðkenningarleiðar sé í samræmi við viðkvæmni þeirrar þjónustu sem stofnun veitir áður en ákvörðun er tekin um það hvaða fullvissustig verður fyrir valinu og hvort tryggt sé að slíkt mat fari ávallt fram við innleiðingu aðgangsstýringar hjá hinu opinbera. Ég spyr síðan sérstaklega hvernig tryggt sé að sérstakt tillit sé tekið til möguleika viðkvæmra hópa til að nýta sér rafræna þjónustu, þá kannski sérstaklega fatlaðra einstaklinga sem ég nefndi hér í upphafi, en líka hvernig litið er til möguleika fólks sem búsett er erlendis til að nota auðkenningarleiðir að opinberri þjónustu. Þetta er ekki bara þröskuldur fyrir fólk vegna fötlunar eða sjúkdóma heldur líka vegna búsetu. Það er kannski rétt að setja þetta í samhengi við almennt netöryggi. Við upplifðum náttúrlega mikla álagsárás að utan í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins hér fyrr í mánuðinum en henni fylgdu síðan ítrekaðar tilraunir til þess að plata (Forseti hringir.) fólk til að láta aðgangsupplýsingar rafrænu skilríkjanna frá sér. Hættan á mannlegum mistökum í slíkum árásum eykst eftir því sem umgengni (Forseti hringir.) fólks við rafrænu skilríkin er kæruleysislegri. Og það að við þurfum að virkja rafrænu skilríkin, öruggustu skilríkin okkar, til að fara í hotjóga — er það ekki bara að verða sérstök öryggisógn?