auðkenningarleiðir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma með þessa umræðu hér á þingi. Það er mikilvægt að gott og öruggt aðgengi sé að opinberri þjónustu um land allt og auðvitað er hann líka mjög mikilvægur sá fjölmenni hópur Íslendinga sem er búsettur erlendis en þarf að nýta sér opinbera þjónustu innan lands. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að Ísland sé meðal allra fremstu þjóða á sviði stafrænnar tækni og þjónustu. Við höfum náð miklum árangri á síðustu árum þegar að því kemur og erum orðin gríðarlega sterk í alþjóðlegum samanburði en þurfum enn að gera betur á ýmsum sviðum.
Við erum með mjög skýr markmið um að einfalda stjórnsýsluna og bæta þjónustu við almenning en líka að auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum með nýtingu stafrænna lausna. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á þetta, bæði að vinna markvisst að því að auka traust almennings á upplýsingatækni en líka að leggja áherslu á netöryggi, persónuvernd, upplýsingarétt, tjáningarfrelsi og upplýsingaöryggi. Ekki síst er það auðvitað mikilvægt að nýta tæknina til að auka netvæðingu náms, svo að ég tali sem háskólaráðherra, í háskólanámi um land allt. Ég hef líka sett fram áherslu, sem m.a. kom fram í þingsályktun um þekkingarsamfélag á Íslandi, um það hvernig tæknin tengir byggðir landsins og Ísland við umheiminn og að innviðir og þjónusta mæti þörfum almennings og atvinnulífs; að við þorum að setja okkur það markmið að vera fremst meðal þjóða.
Annars byggjast svör mín á upplýsingum sem aflað er hjá Verkefnastofu um Stafrænt Ísland og hjá Auðkenni ehf. sem er fullgildur traustþjónustuveitandi í samræmi við lög um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti. Auðkenningarleiðir sem Stafrænt Ísland býður upp á fyrir opinbera aðila — fyrst er spurt um þessa eldri innskráningarþjónustu. Ísland.is býður upp á lágt fullvissustig, þ.e. einfaldan íslykil eða lykilorð. Það er unnið, eins og hv. þingmaður kom inn á, að útleiðingu þeirrar þjónustu þar sem hún stenst í flestum tilvikum ekki öryggis- og persónuverndarkröfur fyrir þau gögn sem Ísland.is er að birta. En auk þess, svo að ég bæti því við, eru fjölmargar lausnir á opnum markaði fyrir slíka innskráningu, einfaldari innskráningu fyrir minni háttar dæmi, eins og hv. þingmaður kemur inn á, þar sem minni kröfur eru gerðar. Það á ekki að vera nauðsynlegt að það sé t.d. öruggt með rafrænum skilríkjum hver kemst í hotjóga.
Varðandi lið b, þegar spurt er um verulegt fullvissustig, þá býður innskráningarþjónusta Ísland.is, sú eldri, upp á það sem er styrktur íslykill með smáskilaboðum í farsíma. En það er einnig unnið að útleiðingu þeirrar þjónustu þar sem hún uppfyllir heldur ekki öryggis- og persónuverndarkröfur fyrir þau gögn sem Ísland.is er að birta fyrir notendur sína. En fyrir slíka þjónustu eru margar lausnir á opnum markaði sem auðveldlega væri hægt að nota í dæmum sem hv. þingmaður tekur fram.
Síðan er það þessi nýja innskráningarþjónusta Ísland.is sem býður upp á innskráningu fyrir opinbera aðila með háu fullvissustigi, þ.e. rafrænum skilríkjum í farsíma. Hv. þingmaður spyr síðan að því hvaða mat fari fram. Það er þannig að Ísland.is býður ríkisaðilum upp á notkun á þessari miðlægu innskráningarþjónustu og er í því samhengi vinnsluaðili í skilningi laga um persónuvernd. Það er síðan á ábyrgð hvers ríkisaðila fyrir sig, þ.e. ábyrgðaraðila gagna hverju sinni, að meta hvaða auðkenningarleiðir og fullvissusig viðkomandi telur nægjanlegt til að veita aðgang að sínum gögnum. Þau gætu valið einfaldari leiðir en það sem Ísland.is er að leiða í gegn núna með rafrænum skilríkjum ef gögnin eru þess eðlis að það öryggisstig nægi og dugi fyrir þau gögn sem þau eru að veita aðgang að.
Það er einnig gríðarlega mikilvægt, svo að ég nái að koma inn á það, að tekið sé tillit til viðkvæmra hópa sem nýta sér rafræna þjónustu. Ísland.is hefur þróað stafrænt umboðskerfi til að tryggja hópum aðgang að lausnunum. Til staðar eru auðvitað persónulegir talsmenn fatlaðs fólks, samanber nýja reglugerð, og hægt að kynna sér þetta umboðskerfi. Og ekki bara það heldur er sérstakt átaksverkefni í gangi sem fjórir ráðherrar koma að sem er líka liður í lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, um þróun á lausnum og rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk, þar sem við ætlum að gera enn betur af því að við vitum að kerfið er ekki fullnægjandi í dag. Að lokum, gagnvart þeim sem eru búsettir erlendis, þá er verið að vinna í breytingum á smáforriti Auðkennis sem mun gera einstaklingum með íslensk vegabréf erlendis kleift að nota lífkennaupplýsingar sínar, þær sem koma fram í vegabréfi og að auki svokallaða greiningu á andliti, í (Forseti hringir.) sjálfsafgreiðslu rafrænna skilríkja. Þegar lausnin er tilbúin munu Íslendingar búsettir erlendis, sem hafa gild íslensk vegabréf, geta sótt rafræn skilríki. Ég kem kannski aðeins nánar inn á það í seinna svari.