Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

auðkenningarleiðir.

849. mál
[14:46]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa fyrirspurn og svör ráðherra. Þessi ríkisstjórn hefur verið við völd í sex ár og þegar við förum af stað með stefnu sem er mjög góð, varðandi stafræna þjónustu og aðgengi almennt í samfélaginu, þá er eins og hópur fatlaðra hafi setið eftir. Það er alveg ótrúlegt. Alla vega voru byggðir upp sjálfkrafa þröskuldar, erfiðir þröskuldar, fyrir fatlaða og fjölskyldur þeirra sem sjá um þau þegar kerfið var hannað. Mér finnst stundum eins og verið sé að bæta sjálfkrafa við þessum vandamálum í staðinn fyrir að strax frá upphafi sé gert ráð fyrir öllum þjónustuþegum. Þegar farið er af stað með göfuga stefnu þá er eins og hún sé ekki algild. Það er hægt að taka mörg dæmi eins og um aðgengi að Heilsuveru.

Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að halda kyndlinum áfram á lofti. (Forseti hringir.) Það skiptir máli að við sjáum það og finnum, við sem eigum fötluð börn og erum í tengslum við fatlaða, að raunverulegar aðgerðir séu í gangi. Ég er búin að spyrja hæstv. félagsmálaráðherra, ráðherra hefur verið (Forseti hringir.) spurður í gegnum tíðina, en það er eins og við þokumst ekkert áfram í þessum málum þótt viljinn sé til staðar. Ég hvet ráðherra því til góðra verka.