Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

auðkenningarleiðir.

849. mál
[14:48]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka þessa umræðu. Ég reikna með að ráðherrann hafi heyrt eins og ég hversu skýrt ákallið er um að ná sérstaklega utan um hóp fatlaðs fólks þannig að það geti notið stafrænu iðnbyltingarinnar eins og allt annað fólk í samfélaginu. En ef við ætlum að vera í forystu í stafrænni þróun þurfum við líka að ala upp hjá okkur, hjá stofnununum okkar, hjá öllum aðilum samfélagsins, rétta öryggisvitund. Ég hef bara verulegar áhyggjur af því að stjórnvöld hafi áform um að fasa út íslykli og styrktum íslykli án þess að annað komi í staðinn á því fullvissustigi þannig að eina lausnin sem hægt er að ganga að tilbúinni hjá hinu opinbera, eina lausnin sem stofnanir geta gripið gjaldfrjálst og stungið í samband hjá sér, séu rafrænu skilríkin. Það býr nefnilega til ákveðinn hvata hjá stofnunum hins opinbera að nota það sem aðalhliðið inn að rafrænni þjónustu.

Eins og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir nefndi er algjörlega að óþörfu verið að reisa of háa þröskulda of víða en það er líka verið að venja fólk við subbulega umgengni um það öryggistæki sem rafræn skilríki eru. Öryggiskeðjan er aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. Veikasti hlekkurinn er nú oftast manneskjan sem heldur á tækinu, einstaklingurinn sem á upplýsingarnar sem allur öryggisbúnaðurinn á að verja. Ef við setjum ekki skýrari reglur, ef við snikkum ekki lögin um rafræn skilríki þannig til, ef við takmörkum ekki notkun rafrænna skilríkja frá því sem hún stefnir í að vera, þá endum við með því að ala upp hjá öllum almenningi subbulega umgengni við rafræn skilríki sem mun leiða til verulegra öryggisvandamála innan skamms.