Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

auðkenningarleiðir.

849. mál
[14:50]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa góðu og mikilvægu umræðu hér í þinginu. Við höfum komið inn á ýmis mál. Fyrst ber að nefna sérstaklega hóp fatlaðra. Stafrænt Ísland er að tryggja að það verði algild hönnun á því. Varðandi það þegar ungmenni verða lögráða þá hefur hópurinn verið að skoða það, sérstaklega ábendingar sem hafa komið í erindi frá föður lögræðissvipts einstaklings hvað varðar rafræn skilríki. Það eru ekki tæknilegar skorður þar á þegar lögráðamenn geta fengið aðgang fyrir hönd sinna skjólstæðinga en það er lagalega hliðin, hvaða heimildir lögráðamenn hafa samkvæmt lögræðislögum, sem er verið að skoða. Það er verið að leggja lokahönd á að kortleggja það betur. Það skiptir öllu að þessi mál séu í lagi þegar við förum áfram í því að vera fremst meðal þjóða í stafrænni tækni og rafrænni þjónustu hins opinbera og það þarf að vera öruggt að aðgengi allra sé tryggt. Það á líka við um þá sem koma hingað og sækja um alþjóðlega vernd.

Ég er búin að skrifa undir reglugerð, sem vonandi verður birt á næstu dögum, um það að dvalarleyfisskírteini þeirra sem eru á flótta dugi til að fá aðgengi að rafrænum skilríkjum. Er þeirri breytingu ætlað að auka skilvirkni og auðvelda aðgang þeirra hópa. Varðandi þá sem eru búsettir erlendis þá hefur Auðkenni undirritað samning við utanríkisráðuneytið um tilraunaverkefni þar sem tvö sendiráð verða skráningarstöð, líkt og símafyrirtæki og bankar eru núna, til að auðvelda þetta. Við heyrum sögur um aðila úti þar sem augljóslega er algerlega óboðleg bið eftir að þessu sé kippt í liðinn (Forseti hringir.) en við bindum vonir við að þessi lausn sem við erum að vinna að, þ.e. að íslensk vegabréf og greining á andliti og sjálfsafgreiðslustöð rafrænna skilríkja fyrir þá sem búa erlendis, muni leysa þann vanda af hólmi.