Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðir og barátta gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum.

496. mál
[14:53]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Það var ánægjulegt að sjá að niðurstöður fyrstu eftirlitsskýrslu nefndar vegna Istanbúl-samningsins um Ísland væru jákvæðar. Þessi fyrirspurn er að vísu orðin nokkuð gömul en hún var send inn um það leyti sem skýrslan kom út, rétt fyrir jól. Þessi umræða er þó alltaf viðeigandi enda eru aðgerðir og barátta gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum auðvitað ærið og viðvarandi verkefni. En þótt niðurstaðan sé heilt yfir jákvæð er þar sömuleiðis að finna ýmis tilmæli til Íslands um hvað megi hér betur fara. Í skýrslunni er þannig m.a. bent á nauðsyn þess að skoða þætti sem hafa hér ekki verið í forgrunni, m.a. heiðursmorð og umskurð eða kynfæralimlestingu kvenna. Þótt þetta sé ofbeldi sem okkur finnst fjarlægt og framandi þekkjum við dæmi um slíkt hrottafengið ofbeldi á Norðurlöndunum. Áætlað er að yfir 200 milljónir kvenna hafi sætt kynfæralimlestingum, þar með talið um 600.000 konur á EES-svæðinu. Við hljótum því að taka ábendingum eftirlitsnefndarinnar alvarlega.

Virðulegi forseti. Mig langar mig að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra að því hvort og þá hvernig hann hyggst bregðast við tilmælum og ábendingum í nýrri skýrslu GREVIO, eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með Istanbúl-samningnum.