Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðir og barátta gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum.

496. mál
[15:01]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Stutt athugasemd. Ég skal gera mitt allra besta. Hér brást hæstv. dómsmálaráðherra við frábærri fyrirspurn hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur. Ég þakka henni kærlega fyrir að hafa bryddað upp á þessu máli enn og aftur. Þó að það séu liðnir nokkrir mánuðir síðan þessi skýrsla GREVIO kom út þá er ljóst að það hefur lítið verið aðhafst. Þeir þættir sem hæstv. dómsmálaráðherra nefnir hérna eru þættir sem lágu að langmestu leyti fyrir þegar skýrslan var gerð en samt sem áður sér nefndin ástæðu til þess að gera alvarlegar athugasemdir. Athugasemdir nefndarinnar lutu ekki síst að því sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir nefndi áðan varðandi margþáttamismunun sem varðar konur í sérstaklega viðkvæmri stöðu; konur sem glíma við fötlun og aðrar hindranir eins og aðgengi þeirra að þeim úrræðum sem eru í boði, og konur af erlendum uppruna, sem eru gjarnan ekki tölvulæsar til að nota heimasíðuna 112.is. Það sem skýrslan gagnrýnir líka, og sem hefur komið í ljós á síðustu vikum að er alvarleg brotalöm í okkar kerfi, er vangeta kerfisins til að beita þeim úrræðum sem þó eru fyrir hendi, svo sem nálgunarbann, (Forseti hringir.) úrræði til að fjarlæga geranda af heimili og annað slíkt. Það er því alveg ljóst að það er fleira, (Forseti hringir.) það er þörf á að gera fleira, m.a. að breyta hugarfarinu í kerfinu öllu. — Ég gæti talað hér í örugglega meira en 230 ræðum.