aðgerðir og barátta gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum.
Virðulegur forseti. Það er að mörgu að hyggja þegar kemur að þessum viðkvæma og mikilvæga málaflokki og við höfum verið með þessi mál og það sem heyrir þar undir í miklum forgangi í okkar ráðuneyti. Hér var talað um áðan að það væri ekki nóg að skipa einhverja starfshópa, það þyrfti að grípa til aðgerða. Ég tel að við höfum gert það. Ég tel að við séum búin að gera ýmislegt þegar kemur að þessum málaflokki, ég tala nú ekki um þessa breyttu löggjöf, sem verður auðvitað risastórt skref, um réttarstöðu brotaþola, sem samþykkt var í fyrravor. Málið hafði verið í ágreiningi í mjög langan tíma en það tókst að klára það í mikilli sátt í þinginu. Síðan þarf auðvitað að skipa þessa starfshópa af því að það þarf að stilla saman strengi á milli hinna mismunandi ráðuneyta sem fara með þessa málaflokka; þ.e. milli dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, félagsmálaráðuneytisins, sem fyrst og fremst bera þarna ábyrgð.
Það er okkar mat að þó hafi, með þeim skrefum sem stigin hafa verið og því mjög svo jákvæða sem hefur verið að gerast í þessu, tekist að auka traust á kerfinu og að við séum á ágætisvegferð núna í því að auka á almenna vitundarvakningu. Það á bæði við hjá almenningi og eins hjá stofnunum ríkisins. Lögreglan hefur í sínum störfum sýnt það að þar hefur verið mjög aukin áhersla á þessi mál þegar að þeim kemur og það er mjög ánægjulegt að sjá að sú áhersla sem við lögðum á þetta á síðasta ári með því að fjölga stöðum hjá lögreglunni styttir málahalann mjög mikið, það mikið að það er orðið ásættanlegur málsmeðferðartími á þessum málum að mati lögreglu. Það er gríðarlega mikið atriði og hefur oft verið mjög gagnrýnt hversu lengi þessi mál eru að velkjast í kerfinu og viðbrögðin hafa verið sein.
Aðkoma frjálsra félagasamtaka er auðvitað mikilvæg. Þau leika stórt hlutverk á þessu sviði og til að mynda munu þau taka þátt í þeim hópi sem nú er að koma saman. Það er mikilvægt að virkja það öfluga starf sem er til staðar og hjálpar mjög til í þessum efnum.