Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

útgjöld til heilbrigðismála.

499. mál
[15:09]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Á þessu ári verða útgjöld ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum vegna heilbrigðismála hátt í 350 milljarðar. Frá árinu 2017 hefur raunaukning þessara útgjalda verið um 40%. Samt er því statt og stöðugt haldið fram að íslenska heilbrigðiskerfið sé fjársvelt. Þetta er staðhæfing sem sumir kollega minna hér halda mjög gjarnan á lofti og þá ósjaldan með tilvísun í samanburð við nágrannalönd okkar. Þess vegna vildi ég gjarnan fá þessi svör beint í æð frá hæstv. ráðherra.

Virðulegi forseti. Tölurnar ljúga ekki. Við höfum verið að stórauka framlög til heilbrigðismála á Íslandi. Við getum borið það saman svo ekki verður um villst, svart á hvítu. En hvað þá með alþjóðlega samanburðinn? Getum við og eigum við að taka þessi framlög, útgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu og á hvern íbúa, og bera hráar tölur saman við önnur lönd eða skipta aðrar breytur þar máli? Skiptir aldurssamsetning þjóða máli þegar við berum saman útgjöld til heilbrigðismála og ef svo er, hvernig eru þá útgjöld hér í alþjóðlegum samanburði að teknu tilliti til þessa?