útgjöld til heilbrigðismála.
Frú forseti. Þetta er mjög góð umræða sem hér fer fram, að fá það staðfest að við erum með yngstu þjóðum Evrópu og þrátt fyrir það er kerfið ekki skilvirkt og við erum ekki með hagkvæmt kerfi. Það ætti að segja okkur að það séu tækifæri í þessu til að gera betur, skoða hvernig þessu hefur verið stjórnað síðastliðin ár. Það hljóta að vera tækifæri til að gera betur og standa a.m.k. jafnfætis þjóðum sem eru á svipuðu reki og við hvað varðar aldur.
Það sem ég sakna örlítið í umræðunni og einnig í fjármálaáætlun sem nú er verið að vinna og leggja lokahönd á er að það sé tekið á lýðheilsumálum og reynt að byrgja brunninn og horft til þess að við náum virkilegum árangri í þessum málum til að útgjöldin færist frekar í rétta átt. Ég held að það sé einmitt lykillinn að því að ná þessu betur saman hjá okkur.