Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

útgjöld til heilbrigðismála.

499. mál
[15:20]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svörin og hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt. Það er ágætt að fá það á hreint og að draga það fram sem hefur þýðingu í þessari umræðu. Hæstv. ráðherra kom með mikilvægan punkt hérna um nýtingu og árangur, að aukið fjármagn sé ekki sjálfstætt markmið, eins og reyndar hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom inn á áðan. Reyndar er það svo að þegar við skoðum fjárlög síðustu hreinu, athugið hreinu, vinstri stjórnar hér, fjárlögin 2013, voru framlög til heilbrigðismála um 426.000 kr. á landsmann. Sú fjárhæð virðist komin nú í um 600.000 kr. og samkvæmt núgildandi fjárlögum er gert ráð fyrir um 885.000 kr. á landsmann. Aukningin er þess vegna óumdeilanleg staðreynd eða eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir sagði hérna áðan: Það er dýrt að fjárfesta ekki í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigð skynsemi leiðir mann auðvitað til þeirrar niðurstöðu að aldur þjóða hafi mikla þýðingu þegar verið er að skoða og bera saman framlög til heilbrigðismála. Hæstv. ráðherra stafaði þetta reyndar út áðan: Sjúkdómsbyrði eykst með aldri.

Virðulegi forseti. Maður veltir því fyrir sér hver sé tilgangurinn með því að afvegaleiða umræðuna svona eða að vilja kannski ekki horfa á vandann eins og hann er í raun og veru. Er það raunverulega svo að gamaldags hugsunarháttur og fordómar, m.a. í garð fjölbreytts rekstrarforms, komi í veg fyrir að við róum öll í sömu átt til að bæta heilbrigðiskerfið, að einhverjir trúi því statt og stöðugt, þrátt fyrir öll gagnstæð dæmi um annað, að allt verði einfaldlega leyst bara með auknum fjármunum?