Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

græn svæði í Reykjavík.

874. mál
[15:25]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Það er fullt tilefni til að hafa áhyggjur af aðgengi Reykvíkinga að grænum svæðum í höfuðborginni og mér er bæði ljúft og skylt að beina athygli hæstv. ráðherra að þessu sem þingmaður Reykvíkinga, sem hann er reyndar líka. Ég hef talið mig lánsama að alast upp í hverfi í Reykjavík þar sem er stutt í náttúruna og í Reykjavík eru fjölmörg stórkostleg græn svæði, Fossvogsdalurinn, Elliðaárdalurinn og Laugardalurinn, svo eitthvað sé nefnt. Þessi svæði auka lífsgæði okkar og við verðum að standa vörð um þau. Maður hefur því miður fengið á tilfinninguna að meiri hlutanum í Reykjavík sé ekki eins annt um þessi grænu svæði.

Það var sláandi að skoða nýlega úttekt OECD um húsnæðismarkaðinn á Íslandi þar sem bent var á hversu lítið aðgengi Íslendinga í þéttbýli er að grænum svæðum. Ég óska því eftir svörum hæstv. ráðherra um það hvernig aðgengi okkar Reykvíkinga er að grænum svæðum í alþjóðlegum samanburði og hvort grænu svæðin okkar eigi undir högg að sækja í núverandi skipulagi Reykjavíkur, m.a. út af stefnu meiri hlutans í Reykjavík um þéttingu byggðar.

Virðulegur forseti. Ég myndi sérstaklega vilja heyra sjónarmið hæstv. ráðherra varðandi áform meiri hlutans í Reykjavík um landfyllingu í Skerjafirðinum og hvaða áhrif þau hafi á græn svæði og önnur umhverfissjónarmið.