græn svæði í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Á höfuðborgarsvæðinu er mikill fjöldi grænna svæða, m.a. má finna þar opið svæði utan þéttbýlis sem gengur undir nafninu græni trefillinn. Græni trefillinn er samheiti yfir skógræktar- og útivistarsvæði við útmörk sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu. Hann var staðfestur í svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið árið 2002 sem og aðalskipulagi einstakra sveitarfélaga. Hv. þingmaður tekur væntanlega eftir því að ég er að nota orðið höfuðborgarsvæðið. Það er vegna þess að stór hluti trefilsins er ekki innan marka Reykjavíkur. Það þýðir að til að komast að mörgum svæðum græna trefilsins þurfa íbúar í Reykjavík að nota einhvers konar samgöngumáta. Græni trefillinn nær yfir 60 km² en eingöngu 12 km² af honum eru innan marka Reykjavíkur. Þeir 12 km² sem eru í Reykjavík þekja rúmlega 4% af lögsagnarumdæmi borgarinnar.
Ef við tölum aðeins um græn svæði sem eru stærst í þéttbýli í Reykjavík þá er að finna svæði eins og Laugardalinn, Elliðaárdalinn og Klambratún. Staðan er þó þröng fyrir íbúa sem vilja njóta grænna svæða í borginni því þrátt fyrir að þeir þurfi ekki að leita langt til að geta notið útivistarsvæða eins og græna trefilsins þá sýnir nýleg úttekt OECD um húsnæðismarkaðinn á Íslandi, eins og hv. þingmaður benti á, að aðgengi þeirra Íslendinga sem búa á þéttbýlisstöðum að grænum svæðum er ekki gott í samanburði við önnur OECD-ríki. Einungis 3,5% þéttbýlissvæða hérlendis eru skilgreind sem græn svæði en meðaltal OECD-landa er 17%.
Það er alveg ljóst að nú verða græn svæði fyrir raski vegna áforma um þéttingu byggðar og sem dæmi má nefna tillögur meiri hlutans í Reykjavík um Nýja Skerjafjörð en þar verður fjörunni, sem er eina óraskaða svæðið innan tillögunnar, nánast alveg eytt. Það er verið að þrengja að grænum svæðum í Reykjavík með byggingaráformum bæði í Elliðaárdal og Laugardal. Deiliskipulag Stekkjarbakka hefur verið samþykkt en uppbygging er ekki farin af stað. Það var undirskriftasöfnun 12.000 Reykvíkinga sem vildu fá atkvæðagreiðslu um þetta en ekki var orðið við því. Fyrirhugað er að byggja efst í Laugardalnum eða neðan við Suðurlandsbraut og Laugardalurinn er útivistarsvæði allra Reykvíkinga. Það er sömuleiðis gert ráð fyrir 10.000 manna byggð og 5.000 störfum í Grafarvogi sem mun örugglega hafa mikil áhrif. Náttúruperlur Reykvíkinga verða fljótar að týna tölunni ef svona verður fram haldið.
Varðandi Nýja Skerjafjörðinn þá munu þessi áform, eins og ég nefndi, hafa verulega slæm áhrif á líffræðilega fjölbreytni. Fjaran þar er núna svo til óröskuð og auðugt fuglalíf þar allt árið um kring. Svæðið er eitt það lífríkasta í Reykjavík. Í umsögn Náttúrufræðistofnunar um þessa tillögu kemur fram að hún sé í raun í andstöðu við lög um náttúruvernd. Náttúrufræðistofnun bendir t.d. á að borgin segist ætla að endurheimta strönd og leirur með tímanum en það sé ekki skýrt frekar. Þá bendir stofnunin á að það sé erfitt að sjá að leirur myndist aftur á svæðinu, þannig að þetta virðast vera orðin tóm hjá borginni enda er erfitt eða ómögulegt ef menn raska svæði að gera það óraskað aftur. Hvað varðar áhrif landfyllingar og losun gróðurhúsalofttegunda þá liggja (Forseti hringir.) samkvæmt Reykjavíkurborg ekki fyrir upplýsingar um þau áhrif þar sem losun gróðurhúsalofttegunda er ekki matsþáttur í umhverfismati, slík losun er einfaldlega ekki metin. En ég reyni svo að koma fleiru að, virðulegi forseti, í þessu mikilvæga máli hér á eftir.