græn svæði í Reykjavík.
Virðulegur forseti. Ég heyri það að við hæstv. ráðherra og hv. fyrirspyrjandi deilum áhuga á grænum svæðum og þá kannski ekki minnst friðlýstum svæðum sem eru, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, ríflega 40 á höfuðborgarsvæðinu öllu. Ein af spurningunum hjá hv. þingmanni var um hvaða aðgerðir ráðherra hefði í hyggju til að verja græn svæði í Reykjavík fyrir ágangi borgaryfirvalda. Mig langar að nota tækifærið hér og vekja athygli á því og jafnvel spyrja hæstv. ráðherra að því hvað líði friðlýsingu þeirra svæða sem þegar eru í vinnslu eins og Grafarvogur innan Gullinbrúar, Grótta sem er sannarlega í Seltjarnarneshreppi gamla, þ.e. endurskoðun á mörkunum þar, og Urriðakotshraun í Garðabæ sem og Bessastaðanes, en þeirri tillögu veit ég að var vísað til ráðherra fyrir nokkru síðan. En af því að hér er umræða um Skerjafjörð þá hefur einmitt hluti Skerjafjarðar og Álftanes verið í vinnslu líka, þar sem beðið er afstöðu Garðabæjar. Getur hæstv. ráðherra upplýst okkur um stöðu þessara mála?