græn svæði í Reykjavík.
Frú forseti. Ég held að þessi umræða sé alveg bráðnauðsynleg, það þarf að reyna að hreyfa við skipulagsmálum í borginni hvað varðar þessi mál sem snúa að íbúabyggð og öðrum þáttum í borginni, grænum svæðum.
En ég vil minna hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, vegna þess að þeir hafa áhyggjur af líffræðilegum fjölbreytileika og búsvæðum í fjörunum, á frumvarp sem er hér til afgreiðslu á eftir þar sem þeir geta einnig komið sínu afli að og sjónarmiðum, um áform hæstv. matvælaráðherra um að hleypa hér upp í fjöru aflmiklum smáum togurum. Þar er verk að vinna og ég treysti á hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum, að þeir hafi vit fyrir matvælaráðherra eins og þeir ætla að hafa hér vit fyrir okkar ágæta borgarstjóra í þessu máli og ekki er vanþörf á. Ég þakka fyrir þessa ágætu umræðu.