græn svæði í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og öðrum þingmönnum sem hafa komið hér inn í umræðuna fyrir þeirra innlegg. Til að svara varðandi friðlýsinguna á höfuðborgarsvæðinu þá er það allt saman í ferli og verið að forgangsraða líffræðilegri fjölbreytni þegar kemur að friðlýsingum. Þegar hv. þingmaður hvetur mig til dáða varðandi það að hafa afskipti af þessum málum þá gerir ráðherra lítið í því, því að skipulagsvald sveitarstjórna er mjög sterkt og lítið hægt að gera án þeirra. Ég vil þó nota tækifærið og í það minnsta segja mína skoðun. Mér finnst það alveg með ólíkindum hversu langt þetta mál er komið, þegar kemur að Skerjafirðinum, sérstaklega í ljósi þeirra umsagna sem málið fær, m.a. bæði frá Náttúrufræðistofnun og Umhverfisstofnun. Við skulum átta okkur á því að óröskuð strandlengja er mikil verðmæti í sjálfu sér, ekki síst þegar kemur að líffræðilegri fjölbreytni. Við höfum gengið mjög á þessar fjörur og þær eru fáar eftir í þéttbýlinu. Það verður ekki aftur tekið ef menn ganga fram eins og fyrirætlanir eru um. Það er óafturkræft. Við erum að tala hér um fuglalíf og dýralíf. Við erum að tala um loftslagsmálin, við erum að tala um leirurnar. Það að ganga fram með þessum hætti og gefa ekkert eftir segir okkur bara það að hér stefnir í eitt stærsta umhverfisslys sem við höfum séð í langan tíma. Almenna reglan er sú að borgir heims snerta ekki við sínum grænu svæðum. Þær hlúa að þeim og efla. En við sjáum hér með þau fáu grænu svæði sem eru í borginni að menn hika ekki við að skerða þau. Það eru engin dæmi í það minnsta á Íslandi um það að menn hafi tekið röskuð svæði og breytt þeim aftur í græn þannig að þetta er eitthvað sem er óafturkræft. Ef menn stoppa ekki og skipta ekki um skoðun núna þá erum við að tala um að hér verði stór umhverfisslys og það mun enginn vilja kannast við þau þegar fram líða stundir (Forseti hringir.) á meðan menn munu vilja kannast við það að hafa byggt upp græn svæði í borginni eins og hér var gert áður fyrr.