Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

ný sorpbrennslustöð.

312. mál
[15:37]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Fyrir tæpum þremur árum kom út skýrsla sem setti fram sviðsmyndir um það hvernig ætti að afgreiða magn brennanlegs úrgangs og einnig var farið yfir úrgangsflokka. Í þessari skýrslu er dregið fram, þegar samsetning fargaðs brennanlegs úrgangs er skoðuð, að það eru ákveðnir úrgangsflokkar umfram aðra sem munu skapa þörf fyrir sorpbrennslu á næstu 25 árum. Við þekkjum mörg þessa úrgangsflokka, það er heimilisúrgangur, blandaður óskilgreindur úrgangur, það er gúmmí, það er líka eðja og seyra og dýr- og sláturúrgangur, fiskúrgangur o.s.frv. Þessi mál eru víða í brennidepli, ekki bara hér heldur líka í Evrópu. Eins og staðan er núna, meðan stríðið stendur yfir í Úkraínu og grimmileg árás Rússa er enn í gangi, þá er enn eftirspurn í Evrópu, að mér skilst, eftir brennanlegum úrgangi til að búa til orku. En það eru líka vísbendingar um að Evrópusambandið geti á einhverjum tímapunkti lokað á svona brennanlegan úrgang, a.m.k. farið í verulega skattheimtu sem mun þýða að það verður ekki eins fýsilegt m.a. fyrir okkur að flytja brennanlegan úrgang út. Í dag er Sorpa m.a. með útboð í gangi vegna útflutnings þannig að það er staðreyndin, það blasir við að við erum enn að flytja þetta út.

Ég vil draga fram það sem segir m.a. í skýrslunni, en í henni eru dregnar fram þrjár sviðsmyndir: Í fyrsta lagi ein sorpbrennslustöð hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem er meira en 75% brennanlegs úrgangs, í öðru lagi dreifing sorpbrennslustöðva um landið og síðan í þriðja lagi að halda áfram að senda úrganginn út. Helstu meðmæli með þeim kosti eru að framkvæmda- og rekstrarkostnaður sorpbrennslustöðvar er þá í lágmarki en á móti kemur að mörg Evrópulönd, eins og ég gat um áðan, eru farin að skattleggja innfluttan úrgang og loka brennsluofnum. Þeir segja í skýrslunni að það sé ekki metið fýsilegt að líta til sorpbrennslu erlendis og það þarf að finna framtíðarlausn.

Því spyr ég: Hvað líður uppbyggingu nýrrar sorpbrennslustöðvar? Mér sýnist vanta framtíðarsýn, það vantar ekki síður að við tengjum atvinnulífið við þetta. Það er það sem m.a. samkeppnisyfirvöld í Evrópu benda á, atvinnulífið verður að koma mun markvissar að stefnumótun varðandi það hvernig við vinnum úr úrgangi og brennanlegum úrgangi eins og hér um ræðir. (Forseti hringir.) Ég vil gjarnan fá að heyra hver framtíðarsýn ráðherra er og hvaða ákvörðunum við megum búast við þegar kemur að sorpbrennslu hér á landi.