ný sorpbrennslustöð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem er mjög mikilvæg, en við verðum samt að hafa það í huga að lög nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, mæla fyrir um stjórnsýsluhlutverk sveitarstjórna í úrgangsmálum. Samkvæmt lögunum skal sveitarstjórn sjá um að starfræktar séu móttöku- og söfnunarstöðvar fyrir úrgang sem fellur til í sveitarfélaginu, eftir atvikum í samstarfi við aðrar sveitarstjórnir, sbr. 1. mgr. 8. gr. laganna. Sorpbrennslustöð er dæmi um móttökustöð í skilningi laganna.
Á síðastliðnum tveimur árum hafa verið unnar tvær greiningar sem miða að því að meta þörf fyrir sorpbrennslustöð eða -stöðvar á Íslandi ásamt því að fjalla um mögulega staðsetningu slíkra stöðva, rekstrarforsendur, stofn- og rekstrarkostnað, eignarhald og fjármögnun. Greiningarnar voru unnar af óháðum ráðgjöfum fyrir ríki og sorpsamlög sveitarfélaga. Niðurstaða greiningarinnar bendir til að næstu 20 árin eða svo verði árlega þörf fyrir að brenna um 90.000–100.000 tonnum af úrgangi á ári, þ.e. úrgangi sem ekki er hæfur til endurvinnslu. Fyrir þennan úrgang er brennsla með orkunýtingu ákjósanlegri kostur með tilliti til umhverfisins en urðun. Búist er við að langstærstur hluti þess úrgangs falli til á Suðvesturlandi eða um 84%. Til að setja þetta magn í samhengi er núverandi staða sú að ein sorpbrennsla er starfandi hér á landi og getur hún brennt rúmlega 12.000 tonnum á ári. Það er því ljóst að fyrirliggjandi brennslugeta í landinu annar ekki því magni sem búast má við að þurfi að brenna.
Sorpsamlögin á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Vesturlandi og Suðurlandi hafa sýnt frumkvæði í málinu og stóðu m.a. að annarri af þeim greiningum sem áður voru nefndar ásamt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Sú greining var unnin út frá þeirri forsendu að reist yrði ein brennslustöð á Suðvesturlandi til að mæta brennsluþörfinni með brennslugetu allt að 130.000 tonnum á ári. Í niðurstöðu greiningarinnar kemur jafnframt fram að enn sé mögulegt að flytja brennanlegan úrgang úr landi en tekið sé að þrengjast um þá leið, eins og hv. þingmaður vísaði til. Ætla megi að sú þróun haldi áfram og að áhættan sem fylgir því að treysta á útflutning sé ekki ásættanleg fyrir sveitarfélögin. Samkvæmt greiningu eru 80% líkur á að endanlegur stofnkostnaður við stöð sem þessa verði á bilinu 20–35 milljarðar kr. Þá er um að ræða afar grófa kostnaðaráætlun og engin hönnun hefur farið fram.
Varðandi rekstrarform er horft til samstarfs opinberra aðila og einkaaðila og greining á möguleikum til fjármögnunar verksins leiddi í ljós að áhugi á því er meðal helstu fjárfesta og fjármögnunaraðila. Þróa þarf verkefnið áfram og afla frekari upplýsinga. Ráðuneytið hefur lýst yfir vilja til að koma áfram að undirbúningi að uppbyggingu innviða til brennslu úrgangs undir forystu sveitarfélaganna og atvinnulífsins, þar á meðal að meta þörf fyrir frekari stuðning ríkisins við uppbygginguna. Í áðurnefndri greiningu sorpsamlaga á Suðvesturlandi eru m.a. nefnd sem dæmi um hugsanlegan stuðning; beint fjárframlag, fjárfestingarsamningar, ríkisábyrgð og flutningsívilnanir. Ef ráðist verður í byggingu stórrar sorpbrennslu með stuðningi ríkisins er mikilvægt að stöðin þjónusti allt landið óháð staðsetningu. Jafnframt er mikilvægt að við uppbyggingu verði þess sérstaklega gætt að ekki myndist hvati til að brenna úrgangi í stöðinni sem getur farið í annan farveg ofar í úrgangsþríhyrningnum, svo sem í endurvinnslu. Læra þarf af reynslu annarra ríkja hvað þetta varðar en sú staða hefur komið upp í sumum ríkjum að brennsla hefur verið í samkeppni við endurvinnslufarvegi um þann úrgang sem fellur til.
Menn ræða hér alla jafna um eina stóra sorpbrennslustöð. Þó svo að við hendum allt of miklu þá erum við með lítið sorp út af fámenninu. En við eigum við öðruvísi vanda að etja en flestir aðrir vegna þess að við erum fámenn þjóð í mjög stóru landi þannig að þó svo að menn tali um að það sé mikilvægt, miðað við gefnar forsendur, að hafa eina stóra stöð þá væri auðvitað æskilegra að til væru lausnir sem myndu kalla á minni flutning á sorpi á milli landshluta.
Til viðbótar má nefna að fleiri aðilar hafa verið með til skoðunar uppsetningu sorpbrennslustöðva eða brennsluofna fyrir dýraleifar, svo sem Vestmannaeyjabær, Sorpstöð Rangárvallasýslu, Norðurá bs. og einkaaðilar. Ráðuneytið fundaði nýlega um málið með Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Sorpu og það er sameiginlegur vilji að setja af stað vinnu til að móta næstu skref, mynda vettvang til að vinna málið áfram og draga upp mögulegar sviðsmyndir og mikilvægt að fá fleiri landshluta, sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga að þeirri vinnu því að þetta verkefni, virðulegur forseti, fer ekki frá okkur. Það er hins vegar alveg ljóst að þetta er ekki á vettvangi ríkisins en okkar nálgun hefur samt sem áður ekki verið sú að við viljum ekki starfa með sveitarfélögunum því það viljum við gera. En það liggur alveg fyrir hvar málaflokkurinn er.