Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

ný sorpbrennslustöð.

312. mál
[15:55]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir umræðuna og öllum hv. þingmönnum sem tóku þátt. Ég held að það skipti máli að við séum alveg meðvituð um hvað við erum að tala um hér. Mér fannst það sem kom fram hér hjá öllum gott, svona að vissu marki, en þetta er ekki einfalt mál, höfum það alveg á hreinu. Þetta er ekki einfalt mál. Það vantar ekki viljann hjá löggjafanum. Það vantar hvernig menn ætla að framkvæma þetta. Það er vandinn. 20–35 milljarðar eru ekki einfalt mál. Ef við erum í því að þurfa að keyra úrgang um allt land, landshlutanna á milli, þá er það ekki góð leið og lykilatriðið er að minnka úrganginn og efla hringrásarhagkerfið. Svo sannarlega, þegar kemur að lífrænum úrgangi, væri mjög sorglegt ef niðurstaðan væri að keyra hann hér út um allt. Og það leysir engan vanda að tala um að ríkið eigi að taka þetta yfir. Ef menn ætla að fara í það myndi það taka mjög langan tíma og við höfum ekki þann tíma. Við höfum bara ekki þann tíma. Við höfum lýst okkur reiðubúin til að vinna með sveitarfélögunum og atvinnulífinu í þessu, það vantar ekkert upp á það, en rétt eins og ég get ekki komið í veg fyrir umhverfisslys í Skerjafirði þá get ég ekki tekið yfir verkefni sveitarfélaga. Það bara gengur ekki.

En svo maður líti aðeins á jákvæðu hlutina þá vil ég nota tækifærið og segja frá því, og það tengist þessum málum, að það er algerlega til fyrirmyndar að sjá seyrustöð í Hrunamannahreppi sem fimm eða sex hreppar komu sér saman um og eru að nýta seyru. Svipuð útfærsla er á Mývatni en okkur vantar þetta víðar. Þetta er hægt. Ef þessir litlu hreppar geta haft frumkvæði að því að fara í þessa hluti þá geta stærri sveitarfélög gert það líka. En ég held að það yrði eitthvað sagt ef ég gengi í það að fara að taka yfir verkefni sveitarfélaga þegar mér hugnaðist svo. Ég á nú frekar von á því að þá myndi heyrast hljóð úr horni. Þess vegna verðum við að vinna saman og við erum tilbúin til þess.