Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

bann við námavinnslu á hafsbotni.

798. mál
[15:58]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Mannskepnan er hugmyndarík, svo mikið getum við sagt. Ein af nýrri hugmyndum sem gæti farið að koma til framkvæmda er sú sem snýr að námavinnslu á hafsbotni, sem er einhver stórtækasta verkfræðihugmynd sem maður hefur séð í seinni tíð. Þetta snýst um það að ná góðmálmum sem safnast hafa saman á sléttum djúpt undir yfirborði sjávar, allt að 2 kílómetrum undir yfirborðinu. Skip siglir yfir í rólegheitum með risastóra ryksugu neðan í sér og skrapar botninn eftir hnullungum sem innihalda góðmálma sem á að vinna. Þessu fylgir eðli máls samkvæmt gríðarlegt rask á hafsbotninum. Þessu fylgir ofboðslegur drullustrókur upp eftir allri vatnssúlunni sem auðvitað hefur hræðileg áhrif á lífríkið sem þarf tæran sjó til að geta lifað eins og það er búið að venjast því að lifa. Þetta eru hugmyndir sem kalla á mikla ígrundun áður en þeim er hleypt af stað. Alþjóðanáttúruverndarsambandið, IUCN, sem íslensk stjórnvöld eiga aðild að, ályktuðu haustið 2021 að þessa ígrundun þyrfti að taka áður en nokkur leyfi væru veitt til að vinna málma með þessum hætti. Þau mæltust til þess að bann yrði sett við námavinnslu á hafsbotni á grundvelli varúðarsjónarmiða þar til einhver vísindaleg fullvissa yrði fyrir því að slíkar framkvæmdir sem hugmyndir eru um myndu ekki bara rústa lífríkinu. Á tímum þar sem líffræðileg fjölbreytni í hafi er farin að eiga meira upp á pallborðið hjá stjórnvöldum víða um heim þá virkar þetta giska skynsamlegt hjá Alþjóðanáttúruverndarsambandinu, IUCN.

Mig langar þess vegna að spyrja hæstv. ráðherra hvernig íslensk stjórnvöld hafa fylgt eftir þessari ályktun og kannski að leiða okkur í sannleika um það hvernig þessum hugmyndum verði fylgt eftir á, að ég held, ársfundi Alþjóðahafbotnsstofnunarinnar, þeirrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem fer með málefni hafsbotnsins, sem haldin verður í Jamaíka núna í júlí næstkomandi.