bann við námavinnslu á hafsbotni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Almennt þá er líffræðileg fjölbreytni, sama hver hún er, forgangsmál bæði í mínu ráðuneyti og sömuleiðis hjá ríkisstjórninni og það er m.a. ástæðan fyrir því að ég hef áhyggjur af málum sem eru okkur mjög tengd og eru bara stutt frá okkur og við vorum að ræða hér áðan, sem snúa að lífríkinu í Skerjafirði. Það er skýrt dæmi um að það er hægt að valda miklum skaða og þetta er nú bara hjá okkur í Reykjavík þar sem við erum með eina af fáum ósnortnum strandlengjum borgarinnar sem, eins og við þekkjum, er orðið lítið eftir af. Þar erum við að tala nákvæmlega um hluti sem er verið að taka ákvarðanir um núna þar sem við erum með fuglalíf og dýralíf og enginn þarf að velkjast í vafa um að þar erum við að skaða gríðarlega líffræðilega fjölbreytni ef borgarstjórnarmeirihlutinn fer fram eins og áætlanir eru um. Og af því að ég er hér að ræða við hv. þingmann þá hefði ég áhuga á að vita, vegna þess að hann er, eftir því sem ég best veit, þingmaður Reykjavíkur og hlýtur að láta sig málið varða, hvaða skoðun hann hefur á því máli. Þar erum við að fara fram með mál sem hefur bæði mjög neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni og sömuleiðis loftslagsmál. Við þekkjum það, báðir áhugamenn um náttúruvernd, að leirur eru stórmerkilegar og þarna er um að ræða lífverur, ekki bara fugla, sem eru í mikilli hættu ef fram heldur sem horfir.
Mér vitanlega eru ekki neinar slíkar fyrirætlanir varðandi hafsbotninn og ég hef ekki fengið neina fyrirspurn um það sem hv. þingmaður er hér að vísa til. En auðvitað er það forgangsmál að líta til verndunar vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni þar eins og annars staðar. Á þessum fundi sem hv. þingmaður vísar í voru íslensk stjórnvöld ekki viðstödd og tóku ekki afstöðu til ályktunarinnar, sem er náttúrlega ekki bindandi gagnvart Íslandi. En það breytir því ekki að við höfum áhyggjur af þeim málum og erum á með augun á þeim málum, bæði þegar kemur að hafinu, líffræðilegri fjölbreytni í hafi og á hafsbotni sem og á Íslandi. Við erum komin með drög að grænbók fyrir líffræðilega fjölbreytni og vitum að það er að ýmsu að hyggja og þar þurfum við að vera vakandi. Ég hef margoft bent á það að t.d. í okkar loftslagsverkefnum þá megum við ekki ganga þannig fram að það skaði líffræðilega fjölbreytni. Það getur hæglega gerst ef við erum ekki með augun á því.
En af því að þetta er nú samtal þá vil ég nota tækifærið og spyrja hv. 10. þm. Reykjavíkur, Andrés Inga Jónsson: Ætlar hv. þingmaður að reyna að tala um fyrir meiri hlutanum í borginni? Það er núna verið að taka ákvarðanir og ef þær ganga fram þá er það algjörlega óumdeilt og kemur fram í umsögnum frá þeim stofnunum sem gerst þekkja, þá er ég að vísa í Náttúruverndarstofnun og Umhverfisstofnun, og er alveg skýrt að það mun hafa mjög neikvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni, mjög neikvæð áhrif. Við vitum að náttúran er líka í borginni og við vitum það líka að ef menn ganga fram eins og áætlanir eru um þá er það óafturkræft. Menn munu aldrei aftur sjá ósnortna strandlengju við Skerjafjörð, aldrei aftur, ef menn ganga fram eins og fyrirætlanir eru um.
Þess vegna vil ég nota tækifærið, virðulegi forseti, og spyrja hv. þm. Andrés Inga Jónsson hvort hann muni ekki alveg örugglega gera allt það sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir þetta umhverfisslys. Ég veit að hv. þingmaður, þegar hann tekur sig til, er málafylgjumaður og liggur ekkert á sínum skoðunum. Þess vegna vonast ég til þess að hann liggi ekki á þeim skoðunum sem ég trúi ekki að séu aðrar en þær að koma í veg fyrir þetta og hafa vit fyrir flokksfélögum sínum í meiri hlutanum hjá Reykjavíkurborg.